Hvernig skrái ég bílinn sem fornbíl?

#1
Hvernig skrái ég bílinn sem fornbíl?

Núna 1.1 2005 er Benzinn minn orðinn 25 ára gamall og því leyfilegt að skrá hann sem fornbíl. Og það sem ég er að velta fyrir mér er að hvernig er það gert frá a-ö ???

Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#3
Fyrsta skrefið er að ganga í Fornbílaklúbbinn til að tryggingarnar lækki.

Svo er það eftir þinni ákvörðun hvort þú skráir bílinn sérstaklega sem fornbíl. Bifreiðagjöldin falla niður sjálfkrafa þegar hann verður 25 ára og það þarft þú ekki að eiga við. Það er hinsvegar betra uppá að fá hann tryggðan sem fornbíl, eins og félagar í Fornbílaklúbbnum fá, að skrá hann sem slíkan. Það er gert hjá Umferðarstofu, eða umbjóðendum hennar. Þegar hann hefur verið skráður sem slíkur er mögulegt að fá á hann svokölluð fornmerki, sem eru hin svokölluðu gömlu Steðjanúmer. Ef þú pantar á hann fornmerki er skráningargjald fyrir merkið og breytinguna í fornbíl 500 krónur minnir mig. Þá er bíllinn fullgildur fornbíll í einu og öllu.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#4
Mercedes-Benz skrifaði:Fyrsta skrefið er að ganga í Fornbílaklúbbinn til að tryggingarnar lækki.

Þú þarft ekki að ganga í Fornbílaklúbbinn til að fá fornbílatr., þú þarft að vera með annan bíl tryggðan. Sem er ætlaður til daglegs brúks !

Fornbílatrygging er jú ætluð fyrir litla notkun þ.e. aðallega yfir sumarið
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222

http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#6
Benz skrifaði:Alveg vissi ég Gunnar Már að þú myndir koma með svona svar.
Hvað meinarðu Sigurbjörn ????

Þetta er bara staðreynd !
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222

http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#7
...það eru kannski ekkert allir sem vilja vera í Fornbílaklúbbnum. Ef ég ætti gamlan góðan Benz, sæi ég susum enga ástæðu til að vera í Fornbílaklúbbnum. Þar sem ég hef vel að merkja lítinn áhuga á fornbílum - nema þá fornum Benzum auðvitað
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

#8
gmg skrifaði:
Benz skrifaði:Alveg vissi ég Gunnar Már að þú myndir koma með svona svar.
Hvað meinarðu Sigurbjörn ????

Þetta er bara staðreynd !
Bara svekkjandi að sjá góðan félaga sinn draga úr fólki að ganga í þennan annars ágæta félagsskap.Á að vera skylda hvers félaga að hvetja fleiri í klúbbinn en ekki að segja svona að viðkomandi þurfi þess ekki.Jæja, þetta er nú bara mín skoðun og þessi þráður er kominn út fyrir það sem upphaflega var spurt um.
Sigurbjörn H.

#10
gmg skrifaði:
Mercedes-Benz skrifaði:Fyrsta skrefið er að ganga í Fornbílaklúbbinn til að tryggingarnar lækki.

Svo er það eftir þinni ákvörðun hvort þú skráir bílinn sérstaklega sem fornbíl. Bifreiðagjöldin falla niður sjálfkrafa þegar hann verður 25 ára og það þarft þú ekki að eiga við. Það er hinsvegar betra uppá að fá hann tryggðan sem fornbíl, eins og félagar í Fornbílaklúbbnum fá, að skrá hann sem slíkan. Það er gert hjá Umferðarstofu, eða umbjóðendum hennar. Þegar hann hefur verið skráður sem slíkur er mögulegt að fá á hann svokölluð fornmerki, sem eru hin svokölluðu gömlu Steðjanúmer. Ef þú pantar á hann fornmerki er skráningargjald fyrir merkið og breytinguna í fornbíl 500 krónur minnir mig. Þá er bíllinn fullgildur fornbíll í einu og öllu.
Þú þarft ekki að ganga í Fornbílaklúbbinn til að fá fornbílatr., þú þarft að vera með annan bíl tryggðan. Sem er ætlaður til daglegs brúks !

Fornbílatrygging er jú ætluð fyrir litla notkun þ.e. aðallega yfir sumarið
Fornbílatryggingar eru upphaflega verk Fornbílklúbbs Íslands og ég veit til þess að mönnum hefur verið neitað um slíkar tryggingar á grundvelli þess að menn séu ekki félagar í klúbbnum.

Mér finnst það fullkomlega sanngjarnt að klúbburinn fái notið ávinnings af slíkum verkum og sé enga ástæðu fyrir þig GMG að reyna að draga úr því fyrir þetta ágæta félag.

Mér er það fyllilega kunnugt að eitthverjir hafi fengið fornbíla tryggða án þess að vera í félaginu. Hér eru oftast á ferðinni menn sem draga með sér nokkurn fjölda annara trygginga, þ.e.a.s. svona þokkalega stæðir fjölskyldumenn sem tryggja húsið, hversdagsbílinn og fjölskylduna. Nú einnig eru menn sem þekkja eitthvern í tryggingunum og eða geta beytt eitthverjum þrístingi.

Þessar tryggingar eru samningur Fornbílaklúbbs Íslands við tryggingafélögin, en þeir einu sam hafa brotið þetta samkomulag eru tryggingafélögin sjálf. Af því hefur hlotist tjónareynsla á fornbílum í umferðinni sem í flestum tilfellum eru tilkominn vegna óhappa sem utanfélagsmenn hafa valdið og það jafnvel um hávetur.

Þessi óhöpp hafa valdið því að aðilarnir sem hafa brotið samkomulagið hafa séð ástæðu til að hækka iðgjöld fornbíla vegna tjóna sem þeir hafa valdið, og hverjir hafa tapað á því aðrir en félagar í Fornbílaklúbbi Íslands.

Fyrrum Formaður klúbbsins Örn Sigurðsson tók að vísu þetta má upp fyrir stuttu og samdi við eitt af félögunum um betra gjald og það eingöngu fyrir félagsmenn. Slíkt lækkaði tryggingarnar á þessum bílum um hátt í 40% fyrir aðila að klúbbnum.

Hin félögin fylgdu að vísu fast á eftir með nokkuð öfluga lækkun og héldu áfram að brjóta þetta samkomulag eins og áður fyrir vissa útvalda viðskiptavini til að ávinningur hinna aðilanna yrði sem minnstur.

Reyndu svo ekki að segja að það sé ekki til góðs að vera í Fornbílaklúbbi Íslands, því ef hanns eða sambærilegs hagsmunafélags nyti ekki við væru líklega borgaðar fullar tryggingar af þessum bílum í dag.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)
cron