Bíllinn er farinn að ákveða að starta sér stundum ekki, þ.e.a.s. ég set lykilinn í svissinn, heyri klikk (eins og venjulega), svissa á hann og allt í fína þar til ég reyni að starta þá bara gerist ekkert, hann reynir ekki einu sinni. Síðan reyni ég nokkrum sinnum og svo allt í einu reynir hann að starta og hann hrekkur í gang eins og ekkert sé.
Hef lent í þessu við og við síðastliðið hálfa árið eða svo. Var að lenda í þessu núna rétt áðan, en núna var ég með service-lykilinn (þunnur lykill sem ég fékk með bílnum) og ég prufaði að nota hann en ekkert gerist frekar en með venjulega lyklinum. Það var ekki fyrr en ég fór að troða puttanum inní svissinn í þeirri von um að reyna skafa skít af skynjaranum eða eitthvað, prufaði svo og þá startaði hann.
Dettur einhverjum eitthvað í hug?