Start vesen í E320 W210 bíl

#1
Sælir,

Bíllinn er farinn að ákveða að starta sér stundum ekki, þ.e.a.s. ég set lykilinn í svissinn, heyri klikk (eins og venjulega), svissa á hann og allt í fína þar til ég reyni að starta þá bara gerist ekkert, hann reynir ekki einu sinni. Síðan reyni ég nokkrum sinnum og svo allt í einu reynir hann að starta og hann hrekkur í gang eins og ekkert sé.

Hef lent í þessu við og við síðastliðið hálfa árið eða svo. Var að lenda í þessu núna rétt áðan, en núna var ég með service-lykilinn (þunnur lykill sem ég fékk með bílnum) og ég prufaði að nota hann en ekkert gerist frekar en með venjulega lyklinum. Það var ekki fyrr en ég fór að troða puttanum inní svissinn í þeirri von um að reyna skafa skít af skynjaranum eða eitthvað, prufaði svo og þá startaði hann.

Dettur einhverjum eitthvað í hug? :roll:


Mercedes Benz W210 E320 4matic Elegance 98' - Í notkun
Hyundai Elantra 1.8GT 94' - Seldur
;)

Re: Start vesen í E320 W210 bíl

#3
Hlynzi skrifaði:Gæti verið að glugginn á lyklinum og skynjaranum sé orðinn máður (rispaður) ?
Einnig gæti einingin sjálf verið að hrekkja.
Já, spurning. En hann gat samt lesið lykilinn og leyft mér að svissa á hann? Mér datt í hug eitthvað sambandsleysi einhversstaðar þarna á bakvið sem tengist í svissinn? Ég bara veit ekkert hvernig þetta er þarna á bakvið, hef ekki fiktað í því neitt.
Mercedes Benz W210 E320 4matic Elegance 98' - Í notkun
Hyundai Elantra 1.8GT 94' - Seldur
;)

Re: Start vesen í E320 W210 bíl

#5
Hef lent í alveg eins veseni á SLK230 bíl. Það reyndist vera brunnin lóðning inni í K40 relayinu, sem er vist algeng bilun. Það veldur því að bensindælan fær ekki straum og þá fær startarinn ekki straum heldur.
Garðar Lárusson
s. 892-0084

500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987

Re: Start vesen í E320 W210 bíl

#6
Takk fyrir svörin. T.d. hefur þetta ekki komið fyrir aftur síðan ég gerði þennan póst, þannig að þetta er ekkert að gerast oft en hefur komið fyrir stöku sinnum. :?
Mercedes Benz W210 E320 4matic Elegance 98' - Í notkun
Hyundai Elantra 1.8GT 94' - Seldur
;)