valdi skrifaði:takk fyrir. já það virðist vera mjög lítið um w211 bíla hér á spjallinu, það eru eiginlega mest eldri bílar hérna og w124 alltaf í fararbroddi

Það hefur hallað ansi mikið á alla spjallþræði eftir tilkomu Facebook. Það er því miður staðreynd
Varðandi það að það sé mest eldri bílar hérna þá er það alveg rétt. 124 línan hefur augljóslega verið vinsælust enda mikið til af þeim bílum enn á götum borgarinnar, alveg magnað m.v. bíltegund sem kom á markaðinn 1985
210 línan hefur ekki notið eins mikillar hylli meðal spjallverja en 211 hefur verið í sókn. Kæmi mér ekki á óvart að það yrði aukning þar á - ef menn nenna ennþá að spjalla í svona spjallkerfum
Til að fá meira líf í svona spjallþræði þá þurfa bara allir að vera duglegri að setja inn efni. Þú varst nú ansi duglegur Valdi fyrir nokkru síðan, bara endilega halda því áfram.
Spjallið er mum meira skoðað en menn halda, a.m.k. sýnir tölfræðin um flettingar það
