Mercedes Benz E500 Avantgarde nýjar myndir neðst í 1.póst

#1
sælir verið þið, ég er búinn að vera að leita mér að "almennilegum" bíl í þónokkurn tíma og langaði í eitthvað sem fer vel með mann, er fallegt,og virkar svona sæmilega :)

búinn að vera að spá í tveimur e500 síðan í ágúst og þeir seldust báðir áður en ég var búinn að ákveða mig með að fá mér e500 (var að spá í ýmsu öðru,crysler 300c,ford f150 04+ t.d.) en á endanum ákvað ég að ég gæti ekki svikið stjörnuhjartað og ég sé heldur betur ekki eftir því :)

en bíllinn er árgerð 2003 ekinn 138 þúsund, grár að lit (744)
avantgarde með svörtu leðri,original xenon,loftpúðafjöðrun,síma,navigation,keyless entry,keyless go(held ég að það heiti, takki í gírhnúð til að setja í gang og drepa á) stærri benzíntank,6 diska magazín loftkæling í framsætum,miðstöð afturí,gardína í afturrúðu og fullt fullt af hlutum sem ég kann ekkert á :oops: ég held það sé þægilegra að segja að hann sé með öllu nema panorama þaki hehe :)

fékk hann á glænýjum nagladekkjum, og samdi um að fá með honum sumardekkin sem voru undir honum hehe :mrgreen:

gallar, ein lítil beygla á vinstra frambretti, langar að sjá hvort hægt sé að banka hana út án þess að þurfa að mála brettið, það er ekki brot í lakki eða neitt þvílíkt,tvær rispur á afturhurð,ekkert rosalegar en ég vil láta bletta í þær allavega, og það er kominn tími á bremsuklossa að framan(búinn að kaupa) skipti um þá í vikunni.. þetta er svona það helsta sem ég hef útá að setja þó sumt megi gera betra :)

hér eru myndir af tækinu ,teknar uppá brauðrist frá 1978,ég tek betri myndir í vikunni þegar verður gott veður og billinn nýbónaður :)
gæti ekki verið sáttari með hann og lífið er bara yndislegt núna hehe :)

jæja hérna eru komnar nýjar aðeins betri myndir ! :D


213 PARAMETER STEERING

220 PARKTRONIC SYSTEM (PTS)

242 FRONT SEAT RH ELECTRIC ADJUSTABLE WITH MEMORY

249 AUTOMATICALLY DIPPING INSIDE REAR VIEW MIRROR

275 MEMORY PACKAGE (DRIVER SEAT, STRG. COL., MIRROR)

287 THROUGH-LOADING FEATURE

289 WOOD/LEATHER STEERING-WHEEL

354 ANTENNA FOR TELEPHONE D/E-NET

414 ELECTRIC TILT/SLIDE SUNROOF IN GLASS VERSION

423 5-SPEED AUTOMATIC TRANSMISSION

475 TIRE PRESSURE CONTROL

500 OUTSIDE REAR VIEW MIRROR LH AND RH FOLDING

540 ROLLER BLIND, ELECTRIC, FOR REAR WINDOW

551 ANTI-THEFT/ANTI-BREAK-IN WARNING SYSTEM

581 AUTOMATIC AIR CONDITIONER

600 HEADLAMPS - CLEANING EQUIPMENT

673 HIGH-CAPACITY BATTERY

810 SOUND SYSTEM

819 CD CHANGER

882 INTERIOR SAFEGUARD/TOWING PROTECTION

910 DYNAMO WITH HIGHER CAPACITY (FFO)

915 FUEL TANK WITH LARGER CAPACITY

926 AIR POLLUTION CONTROL D4 EU4-MEASURES

954 EQUIPMENT PACKAGE FOR AVANTGARDE VEHICLES

INTERIOR COLOR: 831A

plön:
finna mér flottar 19"felgur til að hafa undir næsta sumar
e63 amg skott lip
xenon í kastara
led í númersljós búinn að kaupa
led í parkljós búinn að kaupa
kannski e63 amg framstuðara í draumum mínum :lol:
laga þau smáatriði sem mér finnst að betur mættu fara í bílnum.

NÝ MYND ! nýjar felgur fyrir sumarið :)
hér er hann kominn á 19" 8.5" að framan og 9.5" að aftan.
þessi neðsta er í uppáhaldi hjá mér , allt í boði samsung galaxy og instagram hehe :)

búinn að mála og pólera felgur og lækka! liturinn er kawasaki violet.

núna verða original kallarnir örugglega brjálaðir.


kv.valdi
Seinast breytt af valdi þann 22 Júl 2014, 23:15, breytt 6 sinnum alls.


Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM

Re: Mercedes Benz E500 Avantgarde

#7
smá myndaupdate í póst fyrsta póst, nú er hann kominn á 19" 8.5" að framan og 9.5" að aftan.
það er smá sigið hornið á framstuðaranum þarna eins og sést, en það hefur verið búið að festa það með plaststrappa, ég þarf að redda mér nýrri smellu þegar ég á leið í bæinn næst :)

kv.valdi
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM
cron