S-Class Coupe (SEC / CL)

#1
Það er skemmtilegt frá því að segja að verið var að frumsýna nýjan S class coupe í Frankfurt fyrr í þessum mánuði. Þetta er reyndar hugmyndabíll sem var sýndur, en sennilega er hann ekki langt frá endanlegri hönnun.

Ég var í Stuttgart nú í sumar, og frétti það þegar ég var í verksmiðjunum í Sindelfingen að nýr S class coupe væri væntanlegur á miðju næsta ári (2014). Og ekki nóg með það, heldur var talað um að nú ætti S bíllinn einnig að koma í cabriolet útgáfu (blæju).

Ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að blæju útgáfa a S bíl hefur ekki komið síðan W111/W112 coupe var framleiddur. Það má segja að SL bílarnir (SL, SLK, SLR og SLS) hafi verið alfarið í því hlutverki, ásamt jafnvel E útgáfunni allt frá R124. Það verður því spennandi að sjá S bílinn með blæju aftur.

Mörgum hefur í gegnum tíðina þótt þessir bílar með fallegustu bílum sinnar samtíðar og jafnvel enn þann dag í dag. Auðvitað er smekkur manna misjafn og sitt sýnist hverjum, en mér persónulega finnst W111/W112 coupe bíllinn einhver fallegasti bíll sem smíðaður hefur verið. Auðvitað er C126 síðan samtímaklassík sem var það strax frá upphafi og er bíll sem allir geta verið sammála um að sé fallegur.

Það verður því athyglisvert að fylgjast með því þegar þessari 8. kynslóð S-class coupe þegar hann kemur á næsta ári, og áhugavert að vita hvort hann nái að eldast jafn vel og sumir fyrirrennarar hans.

1. 300S (1951-1958) 2. W111 coupe (1961-1971) 3. C107 (1972-1981) 4. C126 (1980-1991) 5. C140 (1992-1999) 6. C215 (1999–2006) 7. C216 (2006-?) 8. S-Class Coupe 2014


Sveinn

Re: S-Class Coupe (SEC / CL)

#4
sveinn skrifaði:Já, fallegur er hann...

Það er svo alltaf spurning hvernig hönnun eldist, en ég hef það á tilfinningunni að þessi eigi eftir að nálgast það að vera á stalli með W111/W112 coupe og C126... ;)
Já sammála þér en reyndar finnst mér C216 ótrúlega vel heppnaður bíll.
Bíð þó spenntur eftir að sjá cabriolet útgáfuna af nýjum S-Class 8)
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: S-Class Coupe (SEC / CL)

#5
216 bíllinn er svo geðveikur. Held að fáir samtímabílar komist með tærnar þar sem hann hefur hælana. Þvílíkur munur á honum og svo aftur 215 bílnum, sem var hálfgjört hönnunarslys að mínu mati. Alls ekki fallegur bíll, en svona "gæjalega ljótur".
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: S-Class Coupe (SEC / CL)

#8
Glæsileg samantekt hjá þér Sveinn og greinilegt að 7 kynslóð muni verði rosalegur bíll einu orði sagt....

svona svipað eins og KR sem voru að verða Íslandsmeistarar í 26 sinn :D

kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: S-Class Coupe (SEC / CL)

#9
Ég er nú alveg viss um að einhverjir hafi rekið augun í gatið frá 1970 til 1980 ;)

...en á þessum tíma var auðvitað futtrúi 107 bílsins sem fyllti þetta gat eða C107.

Mér hefur nú reyndar alltaf fundist hann of líkur SL bílnum til að geta verið fulltrúi SEC, enda var hann kallaður SLC. En hjá verksmiðjunum er litið svo á hann sem fulltrúa þessarar línu :)
Sveinn

Re: S-Class Coupe (SEC / CL)

#10
sveinn skrifaði:Ég er nú alveg viss um að einhverjir hafi rekið augun í gatið frá 1970 til 1980 ;)

...en á þessum tíma var auðvitað futtrúi 107 bílsins sem fyllti þetta gat eða C107.

Mér hefur nú reyndar alltaf fundist hann of líkur SL bílnum til að geta verið fulltrúi SEC, enda var hann kallaður SLC. En hjá verksmiðjunum er litið svo á hann sem fulltrúa þessarar línu :)
Ég hef heyrt að 107 sé stærsti bílaklúbbur Þýskalands ,,

hef ekki neina sönnun fyrir því svosem
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507



http://alpina.123.is/pictures/
cron