Ég var í Stuttgart nú í sumar, og frétti það þegar ég var í verksmiðjunum í Sindelfingen að nýr S class coupe væri væntanlegur á miðju næsta ári (2014). Og ekki nóg með það, heldur var talað um að nú ætti S bíllinn einnig að koma í cabriolet útgáfu (blæju).
Ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að blæju útgáfa a S bíl hefur ekki komið síðan W111/W112 coupe var framleiddur. Það má segja að SL bílarnir (SL, SLK, SLR og SLS) hafi verið alfarið í því hlutverki, ásamt jafnvel E útgáfunni allt frá R124. Það verður því spennandi að sjá S bílinn með blæju aftur.
Mörgum hefur í gegnum tíðina þótt þessir bílar með fallegustu bílum sinnar samtíðar og jafnvel enn þann dag í dag. Auðvitað er smekkur manna misjafn og sitt sýnist hverjum, en mér persónulega finnst W111/W112 coupe bíllinn einhver fallegasti bíll sem smíðaður hefur verið. Auðvitað er C126 síðan samtímaklassík sem var það strax frá upphafi og er bíll sem allir geta verið sammála um að sé fallegur.
Það verður því athyglisvert að fylgjast með því þegar þessari 8. kynslóð S-class coupe þegar hann kemur á næsta ári, og áhugavert að vita hvort hann nái að eldast jafn vel og sumir fyrirrennarar hans.
1. 300S (1951-1958)