Ég er með Mercedes Benz S320 CDI árgerð 2004 sem ég eignaðist með ónýtt hedd, bíllinn stóð hjá mér frekar lengi bæði úti og inni. Að vísu hefur verið gert við heddið og bíllinn því komin í gang. Yay!
Nema það að fyrir utan æðislegan bíl þá er hann algerlega máttlaus, ekkert afl og hann er fastur í "Limp Mode" þannig að ekkert gerist.
Ég fór með bílinn til Guðjóns upp í D&C á Hamarshöfða og fékk ég þar frábæra þjónustu og sanngjart verð, en ég fékk nú bara rétt að tengja hann við tölvu og sjá villumeldingarnar sem komu upp.
Til að byrja með þá var loftflæðisskynjarinn alveg í steik þar sem hann á að gefa tölur á bilinu 337 til 377 en ástandið þegar ég tengdi hann við tölvu gaf hann upp 484 sem er mun hærri tala. Nýjan skynjara setti ég í og hann komin í lag.
Aðrar villur sem ég hef reynt að finna svör við en án árangurs. Diesel Particulate Filter (Load State Filter <=250 er nú 304.) (Ash content of diesel particulate filter <=80 er nú 51. mér var sagt að það síðarnefnda væri í lagi en veit ekki vitinu fjær hvort það sé eitthvað til í því.)
Aðal vandamálið væri þessi M55 mótor sem gefur eftirfarandi villu: 2513-001 (Check component M55 (Inlet port shuttoff motor) Positioner Signals fault.
Ég talaði síðan við Sigurð í Öskju þegar ég var að leita eftir þessum mótor en eftir langa eftirgrenslu á Google um hvar þessi helví*** M55 mótor væri gafst ég upp og hringdi í hann og fékk teikningu senda frá honum sem er meðfylgjandi mynd frá Öskju og er hann númer 18 á myndinni semsagt á kafi undir soggreininni. Ég veit ekki hvernig skal fjarlægja þennan mótor í burtu til að geta skoðað hann án þess að taka soggreinina úr honum,
Þegar ég ræddi svo við mannin sem setti heddið í bílinn hjá mér sagði hann að vandamálið væri að túrbínu(opnan) stæði á sér og gæti ekki opnað sig, ég hugsaði ekki meira um það um tíma á meðan ég leita af vandamálinu sem á að vera hinummeginn í húddinu langt frá túrbínunni semsagt þessi M55 mótor.
Svo talaði ég við Rúnar í Bíladoktornum þar sem ég veit að hann er mikill Benz kall og sagði hann mér að þetta gæti mögulega verið mótorinn sem hleypir mengun frá pústgrein yfir í soggrein að hann væri annað hvort opin eða lokaður eða stæði á sér, ég tel mig hafa fundið mótorinn sem opnast niður á við eins og ventill þreif hann og skellti honum í aftur, en sagan hélt áfram ekkert gerðist, bíllinn er enn þá fastur í limp mode og það er hræðilegt að keyra hann..
Meðfylgjandi myndir eru af hlutum sem ég tel mig vita að eiga hlut að þessu vandamáli og því bið ég alla sem hafa þekkingu á þessu að aðstoða mig ef mögulegt er.
Aðrir tenglar á sama vandamálið:
http://www.justanswer.com/mercedes/6bl2 ... turbo.html" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.benzworld.org/forums/w211-e- ... p2015.html" onclick="window.open(this.href);return false;
http://s9.postimg.org/xhf2hwnkv/20130606_194650.jpg
Hérna er hann þrifinn og fínn og honum var skellt í aftur án árangurs!
Von um hjálp.