M55 (Inlet port shutoff motor)

#1
Góðan dag.

Ég er með Mercedes Benz S320 CDI árgerð 2004 sem ég eignaðist með ónýtt hedd, bíllinn stóð hjá mér frekar lengi bæði úti og inni. Að vísu hefur verið gert við heddið og bíllinn því komin í gang. Yay!

Nema það að fyrir utan æðislegan bíl þá er hann algerlega máttlaus, ekkert afl og hann er fastur í "Limp Mode" þannig að ekkert gerist.

Ég fór með bílinn til Guðjóns upp í D&C á Hamarshöfða og fékk ég þar frábæra þjónustu og sanngjart verð, en ég fékk nú bara rétt að tengja hann við tölvu og sjá villumeldingarnar sem komu upp.

Til að byrja með þá var loftflæðisskynjarinn alveg í steik þar sem hann á að gefa tölur á bilinu 337 til 377 en ástandið þegar ég tengdi hann við tölvu gaf hann upp 484 sem er mun hærri tala. Nýjan skynjara setti ég í og hann komin í lag.

Aðrar villur sem ég hef reynt að finna svör við en án árangurs. Diesel Particulate Filter (Load State Filter <=250 er nú 304.) (Ash content of diesel particulate filter <=80 er nú 51. mér var sagt að það síðarnefnda væri í lagi en veit ekki vitinu fjær hvort það sé eitthvað til í því.)

Aðal vandamálið væri þessi M55 mótor sem gefur eftirfarandi villu: 2513-001 (Check component M55 (Inlet port shuttoff motor) Positioner Signals fault.

Ég talaði síðan við Sigurð í Öskju þegar ég var að leita eftir þessum mótor en eftir langa eftirgrenslu á Google um hvar þessi helví*** M55 mótor væri gafst ég upp og hringdi í hann og fékk teikningu senda frá honum sem er meðfylgjandi mynd frá Öskju og er hann númer 18 á myndinni semsagt á kafi undir soggreininni. Ég veit ekki hvernig skal fjarlægja þennan mótor í burtu til að geta skoðað hann án þess að taka soggreinina úr honum,

Þegar ég ræddi svo við mannin sem setti heddið í bílinn hjá mér sagði hann að vandamálið væri að túrbínu(opnan) stæði á sér og gæti ekki opnað sig, ég hugsaði ekki meira um það um tíma á meðan ég leita af vandamálinu sem á að vera hinummeginn í húddinu langt frá túrbínunni semsagt þessi M55 mótor.

Svo talaði ég við Rúnar í Bíladoktornum þar sem ég veit að hann er mikill Benz kall og sagði hann mér að þetta gæti mögulega verið mótorinn sem hleypir mengun frá pústgrein yfir í soggrein að hann væri annað hvort opin eða lokaður eða stæði á sér, ég tel mig hafa fundið mótorinn sem opnast niður á við eins og ventill þreif hann og skellti honum í aftur, en sagan hélt áfram ekkert gerðist, bíllinn er enn þá fastur í limp mode og það er hræðilegt að keyra hann..

Meðfylgjandi myndir eru af hlutum sem ég tel mig vita að eiga hlut að þessu vandamáli og því bið ég alla sem hafa þekkingu á þessu að aðstoða mig ef mögulegt er.

Aðrir tenglar á sama vandamálið:
http://www.justanswer.com/mercedes/6bl2 ... turbo.html" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.benzworld.org/forums/w211-e- ... p2015.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta er teikningin sem ég fékk frá Sigurði í Öskju og M55 mótorinn er númer 18 á myndinni eiginlega fyrir miðju.
Samkvæmt teikningunni sést hérna glitta í M55 mótorinn og get ég hreyft fram og til baka blöðkurnar sem eru í soggreininni þanni að hann stendur ekki á sér.
Hér er held ég þessi ventill sem Rúnar var að tala um að stæði annað hvort opin eða lokaður og hleypti ekki inn lofti frá pústinu, tók hann og þreif hann en sama sagan meðfylgjandi þrifnaður er á næstu mynd:

http://s9.postimg.org/xhf2hwnkv/20130606_194650.jpg
Hérna er hann þrifinn og fínn og honum var skellt í aftur án árangurs!
Hérna er tekið mynd ofan í það sem ventillinn fer ofan í.
Hérna er horft ofan á hann og ég prufaði að hreyfa þetta upp og niður og hann stendur ekki á sér eða slíkt.
Svo þegar ég var að leita af þessum M55 mótor þá reif ég þetta úr og veit ekkert hvað þetta er getur eitthver sagt mér hvað þetta er?
Hérna er túrbínan áður en hún var tengd.
Og svona lítur vélin mín út í dag nema algerlega kraftlaus!

Von um hjálp.


Re: M55 (Inlet port shutoff motor)

#2
Villan sem kemur á mótorinn er svokölluð stöðuvilla, það er ekkert að mótornum. Þessi villa kemur upp vegna þess að við vissar aðstæður á M55 mótorinn að vera í vissri stöðu, hann nær ekki þessari stöðu vegna þess að búnaðurinn sem M55 mótorinn á að hreyfa er fastur eða stirður.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: M55 (Inlet port shutoff motor)

#3
Þröstur skrifaði: hann nær ekki þessari stöðu vegna þess að búnaðurinn sem M55 mótorinn á að hreyfa er fastur eða stirður.
Sæll Þröstur þakka skjót svör, þá spyr ég hvað er það sem á að vera fast þar sem allar þessar "blöðkur" svo kallaðar hreyfast alstaðar þar sem ég hreyfi stöngina á mótornum sjálfum hvað annað gæti verið fast eða stirt?

Re: M55 (Inlet port shutoff motor)

#5
mariobros skrifaði:
Þröstur skrifaði: hann nær ekki þessari stöðu vegna þess að búnaðurinn sem M55 mótorinn á að hreyfa er fastur eða stirður.
Sæll Þröstur þakka skjót svör, þá spyr ég hvað er það sem á að vera fast þar sem allar þessar "blöðkur" svo kallaðar hreyfast alstaðar þar sem ég hreyfi stöngina á mótornum sjálfum hvað annað gæti verið fast eða stirt?
Þú verður að prófa að hleypa rafmagni á mótorinn, gæti vel verið að hann hreyfist vel og svona, en breyti ekki um stöðu ef hann er útbrunninn eða sambandslaus.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: M55 (Inlet port shutoff motor)

#7
Sæll

Ég er búinn að ganga í gegnum þetta sama, ég er með E320cdi 2001 sömu vél að flestu leiti held ég.

Hjá mér var það tvennt sem var að valda þessu, annað af tveimur portum í vacuum ventlinum sem hreyfir EGR ventilinn lak, ( ég blokkeraði bara það rör og það virkaði) Svo þurftir ég einnig að skipta um ventilinn sem að hleypir vacuumi niður á þennan ventil, hann var fullur af sóti og virkaði ekki.

Eftir þetta virkaði bíllinn fínt.

Ég hætti ekki þarna því mér líkar mjög illa við þetta EGR kerfi og tengdi á endanum framhjá því, núna er EGR ventillinn lokaður og bíllinn fer alldrey í limp mode.

Vona að þetta hjálpi.

Og já blöðkurnar í soggreininni voru fastar, þurfti að taka greinina af og þrífa hana, kaupa svo nýjan arm á mótorinn sem tengir blöðkurnar við mótorinn.

Kv Atli