Gangtruflanir...
Ég er búinn að vera í smá vandræðum með að fá truntuganginn úr bílnum og búinn að reyna ýmislegt til að fá mýkri gang í hann. Hélt fyrst að það þyrfti bara að keyra úr honum kúkinn þar sem hann hafði staðið í tvö ár.
Ég er reyndar búinn að fá fínan gang í hann núna og er pínu spældur út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki fattað fyrr hvað var að angra bílinn. Hefði getað sagt mér það sjálfum svona eftir á að hyggja, því ég var ný búinn að laga svipað vandamál með 230CE bílinn minn. Veit ekki hvað ég var að hugsa, eða ekki hugsa. Það tók mig 5 mínútur að laga þetta og ég þurfti ekki að skipta um neitt.
Fyrst eftir að ég kom bílnum í gang og fann hvernig hann gekk, fannst mér eins og þetta stafaði af einhverju í tengslum við kveikjukerfið. Ég byrjaði því að skipta um kertin, en gangurinn breyttist ekki neitt við það. Hann varð hvorki betri né verri, bara alveg nákvæmlega eins. Þá datt mér í hug að athuga kveikjuþræðina og kveikjulokið og fékk mér því annað notað sett til að prófa. Gangurinn varð ekkert betri og ekkert verri við það að setja það í, bara alveg eins og áður. Ég mældi alla þræðina og þeir voru allir með svipaða leiðni og virtust í lagi. Ég prófaði að nota kveikjulokið sem var betra og þræðina sem voru betri, en gangurinn var alveg eins, alveg sami truntugangurinn og ekkert betri eða verri. Það var því ljóst að vandamálið var ekki þarna.
Þá fór mig að gruna bensínkerfið. Byrjaði á þessu vanalega að kaupa innspýtingarhreinsi og íseyði (þar sem hann var búinn að standa lengi yfir allar árstíðir og hefði getað verið búinn að mynda raka í bensíntanki). Sakaði ekki að reyna, en ekki frekar en þau önnur skipti sem ég hef keypt þetta innspýtingarhreinsisglundur, þá virkaði það ekki neitt. Sennilega virkar þetta jukk verr en sykurtöflur á sjúkling með óbylandi trú á lyflækningum. Mér tókst semsagt ekki að trúa betri gang í bílinn.
Þá var mér sagt að þetta væru örugglega spíssarnir. Ég byrjaði á að hringja í Öskju og þar átti settið í bílinn að kosta 100þús kall takk! Fannst það frekar mikið, en var ákveðinn í að skipta um þá þar sem mér var sagt að þeir dygðu ekki meir en 100þús/km og bíllinn keyrður 180þús. Fann síðan spíssa á eBay.com þar sem stykkið kostaði um 25 dollara og kostuðu þeir mig um 23.000kr hingað komnir. Var mjög sáttur við það verð, sem vissulega er gott í samanburði við hvað þetta kostar í Öskju. Setti þessa nýju spíssa í fullur eftirvæntingar, með smá vandræðum þó þar sem þeir pössuðu ekki alveg, og ég hugsa að vonbrigðin hafi ekki leynt sér í svipnum á mér þegar ég setti í gang og bíllinn gekk alveg eins. Ekkert betur og ekkert verr, bara alveg nákvæmlega eins og áður!
Vandamálið lýsti sér með truntugangi í lausagangi, en ekki í akstri eða vinnslu. Fínt hljóð í mótor þá. Það var þegar ég setti þetta svona niður fyrir mig þegar ég áttaði mig allt í einu á því að þetta var sama vandamál og ég var ný búinn að leysa í 230CE. Hafði gengið í gegnum alvega nákvæmlega það sama, ný kerti, nýr súrefnisskynjari, hitaskynjari, nýir spíssar og nýir bla, bla, bla. Það var ekki fyrr en ég heimsótti Guðjón í DC að hann gerði þetta stórum betra á einhverjum 5mín meðan ég stóð og horfði á. Þetta fór reyndar í sama farið fljótlega nokkrum dögum seinna, enda gert á hlaupum, en ég hafði fylgst með hvað hann gerði. Hann stakk voltmæli í pinna 3 í upplýsingatenginu sem er í vinstra frambrettinu og fylgdist með spennunni á meðan hann stillti blönduna með sexkant. Ég hugsaði bara; þetta get ég nú alveg gert sjálfur. Ég googlaði þetta svo bara og fann fljótlega þessa grein hér
Bosch KE3-Jetronic Mixture Adjustment. Ég stillti hann svo útfrá þessum upplýsingum og hann er búinn að vera fínn síðan. Ég bara skil ekki af hverju ég var ekki búinn að átta mig á alveg sömu einkennunum með 300GE. Það tók mig 5 mín að gera hann góðan líka.
Ekki það að það er fínt að vera búinn að endurnýja kerti, þræði, spíssa og svoleiðis
Ég mæli með því að menn lesi þessa KE3-Jetronic grein

...menn þurfa samt sem áður að átta sig á því að það er ekki gott að fikta í þessu nema að framkvæma mengunarmælingu samhliða eða á eftir.