Mercedes-Benz 300GE, 1990

#1
Ég keypti þennan 300GE ´91 fyrr í mánuðinum, en hann hafði staðið í eitt til tvö ár og var ekki gangfær. Að sögn fyrri eiganda var startarinn bilaður, en ómögulegt var að vita hvort eitthvað annað væri að þar sem ekki var hægt að prófa bílinn. Ég tók samt sénsinn, keypti hann óprófaðan og lét flytja bílinn heim með bílaflutningabíl. Það var auðvitað fyrsta verkefnið að finna út hvað væri að, hvort þetta væri startarinn, startpungurinn eða eitthvað annað. Sem betur fer var þetta bara startarinn eins og eigandinn hafði sagt og eftir að hafa skipt um hann rauk bíllinn í gang. Þó var einhver truntugangur í honum, enda kannski ekki nema furða eftir að hafa staðið svona lengi.

Síðan þá hef ég aðallega verðið að dunda mér við lakkviðgerðir, en ef þetta á að vera sparibíll þá þyrfti kannski að sprauta hann við tækifæri. Þetta á hinsvegar að vera fjallabíll, ekki til aksturs innanbæjar nema til að prófa og fullkomið lakk er því aukaatriði :wink: Ég stefni að því að kaupa undir hann stærri dekk og gera hann aðeins trukkalegri. En þetta verður tekið eitt skref í einu.

Hér eru nokkrar myndir sem ég tók í dag:

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/Mercedes_G_a.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/Mercedes_G_b.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/Mercedes_G_c.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/Mercedes_G_d.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/Mercedes_G_e.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/Mercedes_G_f.jpg[/img]


Sveinn

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1990

#10
Jæja, þá er hann farinn að nálgast það endanlega útlit sem ég er búinn að vera með í huga. Kominn á grófan mudder og svartar felgur. Vantar bara svart snorkel, þó að það gagnist nú ekki mikið held ég, heldur yrði bara svolítið töff.

Þetta með felgurnar er búið að vera mikil pæling hjá mér :roll: Langaði svolítið í svona samsettar millitary felgur, en þær kosta bara svo mikið. Yfirleitt eru slíkar felgur dökkar. Þar sem ég þurfti að taka felgurnar mínar í gegn hvort sem er, þá datt mér í hug að gera þessa tilraun með að mála felgurnar (hálf)matt-svartar. Ég hugsaði þetta bara þannig að ef þetta kæmi ekki vel út, þá myndi ég bara nota svörtu málninguna sem grunn og mála þennan hefðbundna silfur-gráa felgulit yfir. Hafði engu að tapa. Málið er að mér finnst þetta bara koma nokkuð vel út, gefur bílnum svona smá military look 8)

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/3 ... hwarz1.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/3 ... hwarz2.jpg[/img]

Hvað finnst mönnum annars um þetta? Geri ráð fyrir að einhverjir séu ekki sammála þessari breytingu :wink:
Sveinn