Re: Ze masterplan is in motion...

#53
Nýjasta... kíki á bílinn eftir að eigandinn er búinn að vinna á fimmtudaginn. Þarf að keyra hátt í 200km eftir honum, en maður leggur það á sig fyrir rétta eintakið.
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.

Re: Ze masterplan is in motion...

#55
VGA skrifaði:Þá er komið að því. Keyri af stað á Rovernum eftir nokkrar mínútur. Ef allt gengur eftir, keyri ég til baka á Bensanum.

Wish me luck...
wish u luck, by the way, geggjaðar felgur....
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Ze masterplan is in motion...

#56
Björgvin skrifaði:wish u luck, by the way, geggjaðar felgur....
Takk fyrir það. Því miður var ekki allt eins og á myndunum. Glæra lakkið farið að flagna. Sýndist lakkið ekki vera orginal. Facelift að framan, skottið ekki. Ekki til ein kvittun um það sem gert hefur verið við bílinn. Eitthvað aukahljóð við afturhljóðin, ryð í bílstjórahurð, allt laust þar sem varadekkið er. Vantaði öskubakkann afturí. Svo var listinn við afturrúðuna skemmdur. Plasthlífarnar yfir hátölurunum voru lausar og fleira.

Það sem var eiginlega verst var að maðurinn er stórreykingamaður. Öskubakkinn framí var yfirfullur af stubbum og bíllinn lyktaði svo hrikalega að ég finn fýluna ennþá. Ég veit að fólk reykir í bílum og það er svo sem allt í lagi, en ég held að það taki einhverja mánuði (og ný teppi) áður en bíllin fer að lykta tiltölulega vel. Þetta var þessi djúpsúra lykt sem maður finnur ofursjaldan.

Ég tuðaði og var ekki sáttur, enda átti bílinn að vera í fínu lagi. Hann endaði á að bjóða mér 1300 evrur og að hann tæki Roverinn, en ég ákvað að láta þetta eiga sig. Hefði verið góður díll, en ég var ekki að finna mig þarna. Þetta var ekki bíllinn minn.
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.

Re: Ze masterplan is in motion...

#58
Benni skrifaði:Verst hvað myndir geta platað mann :roll: :?
Nákvæmlega. Svo var framstuðarinn laus vinstra megin. Bíllinn var fullur af smá bömmerum. Hefði getað lifað með þeim, en ekki öllum á sama bílnum. Þetta var þúsundskurða dauði. Enginn nógu slæmur til að vera alvöru vandamál, en allir saman eru of mikið.

Reyktir bílar eru misjafnir. Konan keypti Alfa Romeo um daginn. Ég tók öskubakkann og miðjustokkinn úr og hreinsaði allt (merkilegt hvað safnast af stubbum og ösku bak við öskubakkann), en sá bíll er fínn í dag. Hann var vorblóm við hliðina á Bensanum. Ég hef aldrei fundið aðra eins reykingafýlu og í gær.

Vona að einhver sem vantar verkefni finni bílinn og bjargi honum. Hann sárvantar fulla uppgerð.
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.

Re: Ze masterplan is in motion...

#59
VGA skrifaði:

Hvað var ásett verð á þennan bíl svona til gamans? Sá hvergi verðmiðann...
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Ze masterplan is in motion...

#60
Hann bauð fólki að bjóða í hann. Ég bauð 1600 evrur, hann sagði að ég gæti fengið hann fyrir 1700, ég bauð honum Roverinn og 1400. Hann sagðist vera opinn fyrir því en vildi sjá hann áður en verðinu yrði slegið föstu. Við enduðum á að hann bauð mér að taka Bensann fyrir 1300 og Roverinn, en ég vildi það ekki.
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.
cron