Ze masterplan is in motion...

#1
Hóhó!

Setti inn þráð nýlega, en hann virðist hafa verið étinn af spjallpúkanum. Þannig er að ég hef ekki átt spennandi bíla í mörg ár. Því skal breyta. Var að selja gamla bílinn sem klikkaði aldrei og lét aldrei mikið fyrir sér fara. Mun sakna hans. Nú deili ég Rovernum með frúnni. Erum að leita að Alfa Romeo 156 handa henni. Seljum svo bretann og þá er komið að mér. Merc skal það vera! Tveggja dyra. Coupé. Hef dreymt um það allt of lengi og nú skal það gerast.

Er eitthvað að vesenast með týpuna. Langar í W123 og W124. Finnst sá eldri hafa meiri karakter, en sá nýrri hefur allt hitt. Kraftmeiri, meiri aukabúnaður, sparneyttnari, yfirleitt í betra standi með minna ryð og slatta ódýrari.

Ég er enginn bifvélavirki, en á meðan vél og skipting eru í lagi og hann hangir ekki saman á minningunum, get ég lagað restina. Er svo að gæla við að koma heim með ferjunni eftir 1-2 ár þegar reynsla er komin á bílinn og taka rúnt um eyjuna. Ef lakkið er ekki að gera sig, gæti ég látið sprauta hann heima. Hver veit. Vil allavega kaupa bíl sem ég mun eiga lengi, enda leiðast mér bílaviðskipti alveg voðalega.

En allavega, fyrsti hluti plansins er kominn. Sunnyinn er farinn. Ferlið er farið af stað.


Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.

Re: Ze masterplan is in motion...

#3
Flottur þessi !

Myndi samt tjékka á skiptingunni, þær eru frekar veikar í 320. Sé samt að hann er ekinn lítið ef samt betra að hafa vaðið fyrir neðan sig.

Vonandi fer þetta að rúlla hjá þér ;)
Gunnar Smári s.866-8282

Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]

Re: Ze masterplan is in motion...

#6
Þessi er smá pínu yfir bödgetinu. Svo er líka vesen á vírunum í facelift bílunum, skilst mér. En um lélegar skiptingar. Fannst þessi ansi ódýr, en sá svo að skiptingin er farin: http://link.marktplaats.nl/421715767

Ég væri til í þennan, en finnst áklæðið ekki alveg vera að gera sig. Leiðist svo þetta hálfkák á rafmagnsrúðum: http://link.marktplaats.nl/423393836

Annars er þetta bíll sem ég væri til í. Fallegir litir, eins og nýr og sanngjarnt verð. Það er bara þetta með hálfrúðurnar aftur: http://link.marktplaats.nl/415312276

Hef verið að skoða 89-92 á 3-4000 evrur. Slatti til af fallegum 300CE keyrðum 150-250.000 fyrir lítið. Í augnablikinu er ég samt heillaðri af W123 bílnum. Það virðist bara vera orðið svolítið vesen að ná sér í gott eintak. Þeir eru líka dýrari en W124 billinn og slaga alveg í 500SEC frá sama tíma.

En gullmolarnir eru svo sannarlega enn til! http://www.autoscout24.de/Details.aspx?id=ljkeejgkunfz

***afsaka hlekki á hollenskar síður, en þar sem ég er búsettur í lálandinu skoða ég þær - annars er bílamál voða svipað á flestum tungumálum***
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.

Re: Ze masterplan is in motion...

#8
VGA skrifaði:Rakst á þennan. http://link.marktplaats.nl/420590208

Benz er þekktur fyrir við í innréttingu. Þetta virðist vera spes módel, en vantar allan við. Hvað er málið? Er þetta orginal? Þykir þetta sportlegt og kúl, eða er þetta fátækra manna innrétting? Sportline með leðri, svo ég efast um það. Er bara ekki að skilja viðarleysið.
Hef nú ekki séð þetta áður en er heldur enginn sérstakur Benz sérfræðingur (þó ég sé nú farin að kunna týpunúmerin :lol: ) en ég held að þetta sé "aftermarket" dót.
Hef ekki séð svona bíl án viðar...
Og ekki er þetta nú sérstaklega flott svona :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Ze masterplan is in motion...

#10
Smekkleysan alveg að drepa fólk. Hefði verið til í að skoða bílinn, en finnst þetta bara allt of ljótt. Takk fyrir svörin.

Annars var ég eiginlega búinn að ákveða að fá mér W123. Get bara ekki ákveðið mig. Held ég geri það ekki fyrr en ég er kominn með lyklana í hendurnar.
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.