http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/1 ... il_stolid/" onclick="window.open(this.href);return false;
[img]http://mbl.is/frimg/5/46/546159.jpg[/img]Gömlum ráðherrabíl stolið
Gömlum Benz með skráningarnúmerið R3347, var stolið í nótt úr bílageymslu við Sólvallargötu í Reykjavík. Bíllinn var lengst af í eigu Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrverandi ráðherra, en er nú í eigu ótengds einstaklings.
Bílageymslan er læst en er sameiginleg fyrir nokkra tugi bíla. Margir ganga um hana og aðgangur er auðveldari heldur en ef um einkabílskúr væri að ræða.
Þjófarnir hafa að öllum líkindum brotist inn í bílinn og tengt framhjá, því að lykillinn er enn í vörslu eigandans. Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við við lögreglu.