R-3347 STOLIÐ!!!! *** Fundinn ***

#1
:shock: :shock:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/1 ... il_stolid/" onclick="window.open(this.href);return false;
Gömlum ráðherrabíl stolið

Gömlum Benz með skráningarnúmerið R3347, var stolið í nótt úr bílageymslu við Sólvallargötu í Reykjavík. Bíllinn var lengst af í eigu Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrverandi ráðherra, en er nú í eigu ótengds einstaklings.

Bílageymslan er læst en er sameiginleg fyrir nokkra tugi bíla. Margir ganga um hana og aðgangur er auðveldari heldur en ef um einkabílskúr væri að ræða.

Þjófarnir hafa að öllum líkindum brotist inn í bílinn og tengt framhjá, því að lykillinn er enn í vörslu eigandans. Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við við lögreglu.
[img]http://mbl.is/frimg/5/46/546159.jpg[/img]


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: R-3347 STOLIÐ!!!!

#3
Það væri svolítið vanhugsaður verknaður að sela fornbíl til að fá varahluti, því við vitum alveg hvaða bílar eru til og hverjum gæti vantað þá varahluti sem væru horfnir þegar bíllinn finnst. Mér finndist nefnilega mjög skrítið ef þessi bíll finnst ekki strax, hann er það áberandi.

Það þarf líka svolitla kunnáttu til aðtengja framhjá og ég veit ekki betur en að þessi bíll sé einnig með stýrislás. Hið undalegasta mál. :roll:
Sveinn

Re: R-3347 STOLIÐ!!!!

#4
þar sem ég vann nú í nokkur ár við að opna bíla, þá get ég alveg upplýst það að lásar í gömlum Benzum eru litlu skárri en í gömlum Saab bílum, en þá mátti opna með nánast hverju sem er og þessvegna setja í gang með næsta skrúfjárni eða AssA lykli. Þetta eru gamlir bílar með gamla og haugslitna hurða og svisscylindra. Við skulum bara hafa augun opin, bíllinn gufaði ekki upp.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: R-3347 STOLIÐ!!!!

#6
Þetta er mjög undarlegt mál
BaraBenz skrifaði:Það er bara að hann fari ekki í gám og sleppi þannig úr landi.
Það er ódýrara að kaupa svona bíl í þessu ástandi úti en að flytja gáminn út
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: R-3347 STOLIÐ!!!!

#7
Olbogi skrifaði:Þetta er mjög undarlegt mál
BaraBenz skrifaði:Það er bara að hann fari ekki í gám og sleppi þannig úr landi.
Það er ódýrara að kaupa svona bíl í þessu ástandi úti en að flytja gáminn út
En ef hann er seldur í varahluti þar?
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: R-3347 STOLIÐ!!!!

#8
BaraBenz skrifaði:
Olbogi skrifaði:Þetta er mjög undarlegt mál
BaraBenz skrifaði:Það er bara að hann fari ekki í gám og sleppi þannig úr landi.
Það er ódýrara að kaupa svona bíl í þessu ástandi úti en að flytja gáminn út
En ef hann er seldur í varahluti þar?
Svipað það er svo mikið vesen að standa í þessu að það er ekki ómaksins virði myndi ég halda. En eins og hér má sjá er ekki skortur á W108/109 á meginlandinu
http://suchen.mobile.de/fahrzeuge/searc ... dCarSeals=
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: R-3347 STOLIÐ!!!!

#10
Það er nú ekki sanngjarnt að setja inn slóð sem er fyrir alla S-bíla, þar á meðal SL

Þegar þú flokkar betur þá eru nú ekki svo ýkja margir eftir, sérstaklega ekki svartir og verðið á álitlegum bílum er yfir € 5000 (ISK 750.000.-)

Og kannski er stýrisskiptingin í þessum auka verðmæti.

Jæja, ekki meira um það.

Alla vega hefur einhver séð sér hag í því að stela honum.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.