Jæja, þar sem ég fékk lækkunar gormana með rauða bílnum var byrjað að skella þeim í áðan. Það er reyndar bara einn kominn í (vinstri að framan) en það gekk nokkuð vel, festingin fyrir balance stöngina er samt leiðinlegri hinu megin þannig það verður líklegra meira maus.
Mig langar mest að týna alla lausa boddýparta utan af rauða bílnum og svarta bílnum og sprauta restina af svarta bílnum rautt en það væri bara í langtíma planinu eins og að swappa mótornum og því yfir. Innréttingin í rauða bílnum er hreint út sagt geggjuð, rafmagn í öllu, full leðrað og allt rosalega heilt. Hins vegar þar sem það er rafmagn í öllu býst ég við því að það verði meira maus af því ég þarf líklega að taka alla víra yfir (eða hvað?). Væri alveg geggjað ef það væru allir vírar tilbúnir á bakvið. Mun líklega skipta út frambremsunum ef það eru stærri bremsur á rauða sem ég býst við (ekkert búinn að skoða hann nóg).
Varðandi mótorinn í rauða þá er eitt risa stórt gat í pönnunni eftir síðasta eiganda, hann sagði að hann hefði drepið á bílnum um leið og hann fann höggið en ég þarf að finna mér pönnu og athuga ástandið á mótornum. (er semsagt formlega að leita að pönnu)
Kveðja,