Gott ráð til að tjunna W124

#1
þetta er ódýrt og fljótlegt ráð til að fá smá auka útur w124 bílnum þínum sem var verið að benda mér á :)

"ill give u a tip to gettin more hp from ur car. At the back of ur engine on the left side (intake side) there is the coolant temp sensor. unplug it splice the harnes to reveal 4 wires that connect to the CTS plug. take a multi meter and find out which of the 4 are grounds.
the wires are arranged in an X layout ie grounds are diagonal. now with the multimeter in continuity test mode check which of the remaining 2 wires feeds the Ignition ECU located on the inside of the left fender. to do that unplug the 2 large round plugs on this EZL ECU and start checking on which of the terminals at the end of the plugs u get the coninuity to one of the wires left on CTS plug.

once located cut the wire where we spliced the harness and reconnect with a resistor of a value of abt 0.7kohm. reconnect all and drive "

vona að þetta komi að einhverjum notum :D


Mbk.
Kjartan Steinar.

Eagle Talon Es '92[NGAPLZ]![Bíða eftir að verða TSi!]
Eagle Talon TSi '93 [PLZNGA][Bíða eftir að verða ES!]
Chevrolet Blazer S-10 '91.

Re: Gott ráð til að tjunna W124

#2
og hvað átti maður að fá mikla aukningu útúr þessu?
Kveðja Gísli.

Nissan Patrol 94 38" TRÖLLI
Nissan patrol 98 33 heimilis bíllinn
Dodge ram 5.9 cummins 93 HRÚTURINN
DODGE RAM HEMI MAGNUM 03 (djásnið) seldur :(
Benz 300D 1989 því miður seldur og og sé mikið eftir honum:(
Benz 190 1985 R.I.P

Re: Gott ráð til að tjunna W124

#3
Ódýrt ráð!

Ég set nú spurningarmerki við það. Er ekki verið að blekkja vélartölvuna? Gefa henni vitlaust merki um hitastig.

Hvað ætli bensíneyðslan aukist margfalt um orkuaukningu. Tala nú ekki um aukna mengun. Fyrir utan hvaða áhrif það gæti haft á vélina.

Ég er efins um að þetta borgi sig.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Gott ráð til að tjunna W124

#5
KjartaanTuurbo skrifaði:nú veit ég bara ekki meir, mér var bent á þetta af benz eiganda í þýskalandi sem á e60 amg og minnir mir 35 aðra benza
Það eitt að eiga marga bíla gerir mann ekki að bílasérfræðingi. Það sem þú ert að benda á er að það er verið að blekkja vélartölvuna um hita vélarinnar og þá lætur hún kaldstartspíssinn pissa bensíni inn í soggreinina. Þetta er skamvinnur gróði þar sem bensín þarf loft(súrefni) til að brenna og á móti þessu auka bensíni er hreinlega ekki nóg loft þannig að bensínið er ekki full nýtt og bílinn gengur á og ríkri blöndu. Við þetta fer eyðslan upp úr öllu valdi en aflið fer KANSKI upp um 5-7hp á 2.3 mótor.

En ef þú myndir ÞJAPPA loftinu inn á mótorinn erum við að tala saman því þá geturu aukið eða minkað boostið(þrýstinginn) á loftinu og þannig fengið blöndu sem brennur betur. Þetta hefur verið gert við þó nokkra M102 og M103(þá með auka kaldstartspíssum) og þrusuvirkað að ég best veit.

Annars hafa "gömlu" kallarnir oftast verið á móti því að fikta við svona tuningar afþví að þeir skilja ekki hvernig hlutirnir virka og þar af leiðandi hlýtur það að vera ónýtt ef það er eitthvað átt við það. Þetta eru einmitt kallarnir sem nota frasan "Það á bara að tuna Amerískt" afþví blöndungar eru nógu einfaldir fyrir þá.
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: Gott ráð til að tjunna W124

#6
olbogi skrifaði:Annars hafa "gömlu" kallarnir oftast verið á móti því að fikta við svona tuningar afþví að þeir skilja ekki hvernig hlutirnir virka og þar af leiðandi hlýtur það að vera ónýtt ef það er eitthvað átt við það. Þetta eru einmitt kallarnir sem nota frasan "Það á bara að tuna Amerískt" afþví blöndungar eru nógu einfaldir fyrir þá.
Ætli það sé ekki líka af því reynslan hefur kennt okkur eitthvað.

Framleiðendur (og leikmenn) hafa t.d. sett forþjöppur á vélar sem hafa ekki verið byggðar fyrir það. Með frekar döprum árangri í mjög mörgum tilfellum. Vélarnar bara hrynja.

Og hvað afleiðingar hefur það á vél að vera alltaf með kaldstartið (innsogið) alltaf á?

Ég vissi um konu sem bíllinn gekk aldrei hjá, sama hvað var reynt að stilla bílinn.
Menn fundu ekkert út úr því fyrr en þeir fóru með henni í bíltúr. Það fyrsta sem hún gerði var að toga út innsogið og hengja töskuna sína þar (innsogið var einu sinni handvirkt).

En þegar upp er staðið þá hafa allar svona breytingar áhrif á endingu véla ef þær hafa ekki verið gerðar fyrir það.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Gott ráð til að tjunna W124

#8
BaraBenz skrifaði:
olbogi skrifaði:Annars hafa "gömlu" kallarnir oftast verið á móti því að fikta við svona tuningar afþví að þeir skilja ekki hvernig hlutirnir virka og þar af leiðandi hlýtur það að vera ónýtt ef það er eitthvað átt við það. Þetta eru einmitt kallarnir sem nota frasan "Það á bara að tuna Amerískt" afþví blöndungar eru nógu einfaldir fyrir þá.
Ætli það sé ekki líka af því reynslan hefur kennt okkur eitthvað.

Framleiðendur (og leikmenn) hafa t.d. sett forþjöppur á vélar sem hafa ekki verið byggðar fyrir það. Með frekar döprum árangri í mjög mörgum tilfellum. Vélarnar bara hrynja.

Og hvað afleiðingar hefur það á vél að vera alltaf með kaldstartið (innsogið) alltaf á?

Ég vissi um konu sem bíllinn gekk aldrei hjá, sama hvað var reynt að stilla bílinn.
Menn fundu ekkert út úr því fyrr en þeir fóru með henni í bíltúr. Það fyrsta sem hún gerði var að toga út innsogið og hengja töskuna sína þar (innsogið var einu sinni handvirkt).

En þegar upp er staðið þá hafa allar svona breytingar áhrif á endingu véla ef þær hafa ekki verið gerðar fyrir það.

Þú þarft nú að vita hvað þú ert með í höndunum áður en þú ferð að eiga við hlutina. Það þýðir ekki að koma með einhverjar fullyrðingar um að vélar þoli ekki hitt og þetta því vélar eru mis vel hannaðr. Við erum ekki að tala um eitthvað Mitsubishi hvað getum við sparað mikið í hönnun heldur Mercedes Benz fyrir Chrysler flippið og þessar vélar þola næstum allt og eru hundruðir dæma um það í daglegri notkun.

Hefur þú einhverntíman séð Benz með brotin sveifarás eða brotnar stimpilstöng? Ég hef einusinni séð svoleiðis og það var ORIGINAL mótor sem hafði verið keyrður á rúmum 2 BÖRUM í nokkra mánuði. Þú ert alltof trúgjarn á tröllasögur

Þessi saga um HEIMSKA konu á BLÖNDUNGSBÍL tengist þessu ekkert, nú ertu búin að horfa of mikið á fréttirnar því þú snýrð útúr eins og pólitíkus og ferð að tala um eitthvað allt annað
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: Gott ráð til að tjunna W124

#9
olbogi skrifaði:Þú þarft nú að vita hvað þú ert með í höndunum áður en þú ferð að eiga við hlutina.
Þetta er nákvæmlega það sem ég var að segja. Ég er ekki að tala um eitthvað annað. Ekki að menn mættu ekki breyta.

Og sagan um gömlu konuna er gott dæmi um hvað fólk gerir sem ekki veit um hlutina. Hvort sem það er á blöndungsbíl eður ei. Og ekki kalla gamla konu heimska þó hún hafi ekki vitað þetta.

Ég veit bara að Range Roverinn minn var með bilaðan hitanema fyrir vélartölvuna og hann eyddi 40 l/100 km. Kaldstartið var alltaf á. Og það hafði ekki góð áhrif á vélina að keyra alltaf á vitlausri blöndu.

Og þú talar um að vél hafi verið keyrð á 2 börum (29psi). Er það ekki vél sem er með forþjöppu? Þessi þráður er um W124 og ég hef aldrei vitað til þess að þeir séu með forþjöppu nema þá dísel og kannski AMG (þekki það ekki).

Ég tek því ekki illa ef þú leiðréttir mig ef ég fer með rangt mál og það er á rökum reist.
Given the strength and reliability of the 2.5 diesel, you can understand why Land Rover thought it would cope with turbocharging, but the result was a warranty nightmare. 2.5TDs can fail in any number of ways, but the most common seems to be internal cracks developing in the cylinder block.
Hér er dæmi um hvernig framleiðandi klikkaði. Þó það sé Land Rover þá ættu þeir að hafa þekkinguna.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Gott ráð til að tjunna W124

#10
Ég hef séð svipað áður, en það var ekki hugsað um að tjúnna bílinn.

Þetta var einfaldlega gert til að fá kæliviftuna fyrr inn, því að hún leyfði mótornum að hitna meira en mönnum var vel við, svo þeir settu þetta viðnám þarna til að lækka þröskuldinn á að setja viftuna í gang.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is