Re: Ryð í W203

#3
Það er engin ábyrgð á ryðskemmdum á Mercedes-Benz bílum. Hinsvegar hefur eitthvað af bílum náð að falla undir eitthverja tæringartryggingu frá Mercedes-Benz sem flestir kalla eitthverja ábyrgð á galla, en er það víst ekki.

Til að fá úr því skorið hvort að bílinn falli undir trygginguna og fái hugsanlega eitthverjar bætur þarf að setja sig í samband við Bílaumboðið Öskju.

Það er hinsvegar alveg ljóst að í öllum tilfellum fellur eitthver hluti af kostnaðinum við viðgerðina á eiganda bílsins, sem í flestum tilfellum er ekkert ósanngjarnt því að það er ekki hægt að segja að þessi og hin skemmdin sé alfarið Mercedes-Benz að kenna, heldur má oft rekja það til rangrar umhyrðu bifreiðarinnar eða slæmra aðstæðna sem hún er notuð í. Má þar nefna sérstaklega óhóflegan saltaustur á götur og rakt loftslag sem bílar eru í hér á landi. Einnig eru steinköst mjög algeng á Íslenskum vegum þó makidamaseraðir séu.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Ryð í W203

#4
Mercedes-Benz skrifaði:Það er engin ábyrgð á ryðskemmdum á Mercedes-Benz bílum. Hinsvegar hefur eitthvað af bílum náð að falla undir eitthverja tæringartryggingu frá Mercedes-Benz sem flestir kalla eitthverja ábyrgð á galla, en er það víst ekki.

Til að fá úr því skorið hvort að bílinn falli undir trygginguna og fái hugsanlega eitthverjar bætur þarf að setja sig í samband við Bílaumboðið Öskju.

Það er hinsvegar alveg ljóst að í öllum tilfellum fellur eitthver hluti af kostnaðinum við viðgerðina á eiganda bílsins, sem í flestum tilfellum er ekkert ósanngjarnt því að það er ekki hægt að segja að þessi og hin skemmdin sé alfarið Mercedes-Benz að kenna, heldur má oft rekja það til rangrar umhyrðu bifreiðarinnar eða slæmra aðstæðna sem hún er notuð í. Má þar nefna sérstaklega óhóflegan saltaustur á götur og rakt loftslag sem bílar eru í hér á landi. Einnig eru steinköst mjög algeng á Íslenskum vegum þó makidamaseraðir séu.
Nei nei nei nei nei. Á fólksbílum er gefin 8 ára ábyrgð á ryði í bílum sem myndast út á við. Ekki eftir saltgustur á Íslandi eða malarvegi á Vestfjörðum. Á atvinnubílum (sbr. Viano, vito og þessháttar) er gefin allt að 12 ára ábyrgð á lakki verði vart við ryð. Þetta er viðurkennt af framleiðanda, ekki bara umboðinu á Íslandi. Það eru þekktir helstu staðir hvar ryð sprettur út á þessum bílum, svo það er ekki tilviljanakennt eftir bíltúr um Sprengisand eða keyra fyrir aftan saltdreifara á Miklubraut.

En einhverra hluta vegna vilja ákveðnir aðilar láta borga með claim viðgerð á boddýi í bílum sem þeir eiga að vera að þjónusta. Það er alveg magnað þar sem verksmiðjan skaffar varahlutina og borgar sprautun, sé reikningurinn sendur út. Eigandi bílsins á ekki að bera neinn kostnað af, falli bíllinn undir claim. Ekki 50%, ekki 15% og ekki 5%.

Þetta á samt ekki bara til um ryð á boddýi, því ég veit til þess að felguboltar hafa verið Claimaðir af umboði vegna þess að hausinn á þeim vill ryðga, skrúfurnar sem halda krómlistanum að framan og aftan á ML W164 eru claimaðar, og jafnvel svörtu ál-listarnir sem koma meðfram framrúðu og upp með bílnum, eftir toppnum og alla leið að afturrúðu hafa verið claimaðir í W203, W211, W220 og W221. Jafnvel í W164.

Þegar fólk er að kaupa Mercedes Benz er það fyrst og fremst að leita eftir gæðum og einhverju sem endist, ekki þurfa að horfa uppá 2-5 ára gamla bílinn sinn verða að ryðhaug, þó hann hafi ekki verið bónaður allann tímann. Lakkið á að upplitast ekki valda tæringu á málminum undir því og ryðga.
Andri Hrafn
---

Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: Ryð í W203

#6
Nietzche var heimspekingur. Ekki ég. Ég er bifvélavirki.

Vona þér hafi ekki sárnað við sannleikann Jóhann. Þú veist þetta jafnvel og ég.
Andri Hrafn
---

Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: Ryð í W203

#7
andrz skrifaði:Nei nei nei nei nei. Á fólksbílum er gefin 8 ára ábyrgð á ryði í bílum sem myndast út á við. Ekki eftir saltgustur á Íslandi eða malarvegi á Vestfjörðum. Á atvinnubílum (sbr. Viano, vito og þessháttar) er gefin allt að 12 ára ábyrgð á lakki verði vart við ryð. Þetta er viðurkennt af framleiðanda, ekki bara umboðinu á Íslandi. Það eru þekktir helstu staðir hvar ryð sprettur út á þessum bílum, svo það er ekki tilviljanakennt eftir bíltúr um Sprengisand eða keyra fyrir aftan saltdreifara á Miklubraut.

En einhverra hluta vegna vilja ákveðnir aðilar láta borga með claim viðgerð á boddýi í bílum sem þeir eiga að vera að þjónusta. Það er alveg magnað þar sem verksmiðjan skaffar varahlutina og borgar sprautun, sé reikningurinn sendur út. Eigandi bílsins á ekki að bera neinn kostnað af, falli bíllinn undir claim. Ekki 50%, ekki 15% og ekki 5%.

Þetta á samt ekki bara til um ryð á boddýi, því ég veit til þess að felguboltar hafa verið Claimaðir af umboði vegna þess að hausinn á þeim vill ryðga, skrúfurnar sem halda krómlistanum að framan og aftan á ML W164 eru claimaðar, og jafnvel svörtu ál-listarnir sem koma meðfram framrúðu og upp með bílnum, eftir toppnum og alla leið að afturrúðu hafa verið claimaðir í W203, W211, W220 og W221. Jafnvel í W164.

Þegar fólk er að kaupa Mercedes Benz er það fyrst og fremst að leita eftir gæðum og einhverju sem endist, ekki þurfa að horfa uppá 2-5 ára gamla bílinn sinn verða að ryðhaug, þó hann hafi ekki verið bónaður allann tímann. Lakkið á að upplitast ekki valda tæringu á málminum undir því og ryðga.

Þetta er ekki alveg rétt með farið hjá þér. Ég var að vinna í þessum málum og þekki þetta mjög vel hvernig þetta er að virka og hvað framleiðandi borgar og hvað ekki. Einnig veit ég vel hvers vegna það er verið að bæta þetta á sumum bílum en ekki öðrum.