Ryð í W203
#1Ég er að velta því fyrir mér hvort það hafi verið einhver ábyrgð á ryði í w203 bílunum, eins og t.d. á innrabretti aftan við framhjólin. Er einhver hér sem veit eitthvað um málið?
Nei nei nei nei nei. Á fólksbílum er gefin 8 ára ábyrgð á ryði í bílum sem myndast út á við. Ekki eftir saltgustur á Íslandi eða malarvegi á Vestfjörðum. Á atvinnubílum (sbr. Viano, vito og þessháttar) er gefin allt að 12 ára ábyrgð á lakki verði vart við ryð. Þetta er viðurkennt af framleiðanda, ekki bara umboðinu á Íslandi. Það eru þekktir helstu staðir hvar ryð sprettur út á þessum bílum, svo það er ekki tilviljanakennt eftir bíltúr um Sprengisand eða keyra fyrir aftan saltdreifara á Miklubraut.Mercedes-Benz skrifaði:Það er engin ábyrgð á ryðskemmdum á Mercedes-Benz bílum. Hinsvegar hefur eitthvað af bílum náð að falla undir eitthverja tæringartryggingu frá Mercedes-Benz sem flestir kalla eitthverja ábyrgð á galla, en er það víst ekki.
Til að fá úr því skorið hvort að bílinn falli undir trygginguna og fái hugsanlega eitthverjar bætur þarf að setja sig í samband við Bílaumboðið Öskju.
Það er hinsvegar alveg ljóst að í öllum tilfellum fellur eitthver hluti af kostnaðinum við viðgerðina á eiganda bílsins, sem í flestum tilfellum er ekkert ósanngjarnt því að það er ekki hægt að segja að þessi og hin skemmdin sé alfarið Mercedes-Benz að kenna, heldur má oft rekja það til rangrar umhyrðu bifreiðarinnar eða slæmra aðstæðna sem hún er notuð í. Má þar nefna sérstaklega óhóflegan saltaustur á götur og rakt loftslag sem bílar eru í hér á landi. Einnig eru steinköst mjög algeng á Íslenskum vegum þó makidamaseraðir séu.
andrz skrifaði:Nei nei nei nei nei. Á fólksbílum er gefin 8 ára ábyrgð á ryði í bílum sem myndast út á við. Ekki eftir saltgustur á Íslandi eða malarvegi á Vestfjörðum. Á atvinnubílum (sbr. Viano, vito og þessháttar) er gefin allt að 12 ára ábyrgð á lakki verði vart við ryð. Þetta er viðurkennt af framleiðanda, ekki bara umboðinu á Íslandi. Það eru þekktir helstu staðir hvar ryð sprettur út á þessum bílum, svo það er ekki tilviljanakennt eftir bíltúr um Sprengisand eða keyra fyrir aftan saltdreifara á Miklubraut.
En einhverra hluta vegna vilja ákveðnir aðilar láta borga með claim viðgerð á boddýi í bílum sem þeir eiga að vera að þjónusta. Það er alveg magnað þar sem verksmiðjan skaffar varahlutina og borgar sprautun, sé reikningurinn sendur út. Eigandi bílsins á ekki að bera neinn kostnað af, falli bíllinn undir claim. Ekki 50%, ekki 15% og ekki 5%.
Þetta á samt ekki bara til um ryð á boddýi, því ég veit til þess að felguboltar hafa verið Claimaðir af umboði vegna þess að hausinn á þeim vill ryðga, skrúfurnar sem halda krómlistanum að framan og aftan á ML W164 eru claimaðar, og jafnvel svörtu ál-listarnir sem koma meðfram framrúðu og upp með bílnum, eftir toppnum og alla leið að afturrúðu hafa verið claimaðir í W203, W211, W220 og W221. Jafnvel í W164.
Þegar fólk er að kaupa Mercedes Benz er það fyrst og fremst að leita eftir gæðum og einhverju sem endist, ekki þurfa að horfa uppá 2-5 ára gamla bílinn sinn verða að ryðhaug, þó hann hafi ekki verið bónaður allann tímann. Lakkið á að upplitast ekki valda tæringu á málminum undir því og ryðga.