Re: 300SEL 6.3, 1967

#11
Fór upp i Esjumel á sunnudaginn að kíkja á gleymda soninn (R22), bara svona til að óska honum gleðilegs árs :lol: og vita hvort hann stæði ekki alveg í lappirnar og svona. Allt í góðu þar og menn farnir að hlakka til vorsins. Gunnar Már (aka GMG) var að sækja R71 vegna smáendurbóta sem standa til og setti hann köttinn inn í staðin. Heilmikil tilfæring sýndist mér... :wink:

[img]http://fornbill.mbclub.is/misc/esjumelur2.jpg[/img]

[img]http://fornbill.mbclub.is/misc/esjumelur1.jpg[/img]


Sveinn

Re: 300SEL 6.3, 1967

#12
Þetta eru gamlar myndir af R-22 sem Inge kona Geirs föðurbróður tekur í ferð þeirra um Borgarfjörðinn fyrir rúmum 38 árum, sennilega sumarið 1972 eða þar um bil (gæti jafnvel verið 1971). Á þessum árum bar bíllinn númerið R-1623, en síðar eftir að Geir keypti 300GE bílinn þá setti hann númerið á þann bíl, en R-10003 á þennan.

Það er ótrúlegt hvað þessar myndir eru vel varðveittar, sérstaklega litirnir, en ég skannaði þær beint af slides-filmu sem hafði verið geymd í lokuðu umslagi inni í skáp í allan þennan tíma. Það er engu líkara en að þessar myndir séu teknar í gær en ekki fyrir tæplea 40 árum, nema vegakerfið sýnir betur hvaða ár þetta er ;)

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj01.jpg[/img]

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj02.jpg[/img]
Við Borgarfjörð

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj03.jpg[/img]
Nálægt Borgarnesi.

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj04.jpg[/img]
Drullusokkar á R-22 !!! ...en, vegakerfið var nú líka aðeins frumstæðara en það er í dag :)

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj05.jpg[/img]
Tekið nálægt Borgarnesi, Hafnarfjall í baksýn.

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj06.jpg[/img]
Á leiðinni til baka, líklega í Hvalfirði.
Sveinn

Re: 300SEL 6.3, 1967

#13
:clapping:

Já ótrúleg myndgæði :shock: Hélt eitt augnablik að þú hefðir tekið þetta á ferð á bílnum þínum á íslenskum malarvegi (og ætlaði auðvitað að skammast yfir því hehehe)
Held ég fari bara að drífa í því að skanna inn allar filmurnar mínar :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: 300SEL 6.3, 1967

#14
Töff myndir og ekki svo langt síðan að stór kafli í Norðurárdal var ómalbikaður.

Fínir drullusokkar og það vantar bara grjótgrindina :lol:
Eyjólfur Karlsson
--------------------------------------
Mercedes Benz 250S 1968 R42095
Mercedes Benz 290GDT 1985 R16377

Re: 300SEL 6.3, 1967

#15
Á morgun verður R-22 ekið í vetrargeymsluna og R-222 settur í skúrinn í staðin. Leiðinlegt að geta ekki haft þessa bíla hjá sér allt árið, en þar sem ég á bara einn skúr verður fyrirkomulagið víst að vera svona :?

Það var ekki hægt annað en að fara á rúntinn í þessu milda haustveðri sem var í dag, en ég ók þá sem oftar um Þingholtin. Gömlu húsin, haustlaufin og blíðan gerðu Laufásveginn eins og hann er þegar hann skartar sínu fegursta 8)

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_c.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_d.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_e.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_f.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_g.jpg[/img]

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_h.jpg[/img]

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/R22_201010g.JPG[/img]

Og já, nokkrar myndir voru auðvitað teknar á uppháhalds myndatökustaðnum mínum :wink:
[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_a.jpg[/img]

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/R22_201010i.JPG[/img]

[img]http://fornbill.mbclub.is/img/R22/R22_201010j.JPG[/img]

Þessi er komin á desktop-ið :wink:
[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/img ... _6.3_b.jpg[/img]
Sveinn

Re: 300SEL 6.3, 1967

#17
gmg skrifaði:Alltaf glæsilegur, hvar er þessi uppáhalds myndatöku staður ?

Fossvogskirkjugarður?

Glæsilegur bíll!
Ásgeir Örn Arnarson
S: 8460963

M.Benz E420 '93 sportline "AMG"
M.Benz 190e 3.0 twinturbo '89 bsk sportline
M.Benz 190e 2.0 '91 - seldur
M.Benz 300ce '88 - seldur
M.Benz 280se '83 - seldur
M.Benz 230e '83 - seldur

Re: 300SEL 6.3, 1967

#18
Ásgeir Örn skrifaði:
gmg skrifaði:Alltaf glæsilegur, hvar er þessi uppáhalds myndatöku staður ?
Fossvogskirkjugarður?

Glæsilegur bíll!
Takk fyrir það...
Jú, passar, Fossvogskirkjugarður er staðurinn. Ótrúlega fallegt þar á haustin.
Sveinn

Re: 300SEL 6.3, 1967

#20
hahaha þetta er árlegur viðburður hjá Sveini !

Glæsilegar myndir, af glæsilegum bílum og laufið orðið gult ;)
:clapping:
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin