Þetta eru gamlar myndir af R-22 sem Inge kona Geirs föðurbróður tekur í ferð þeirra um Borgarfjörðinn fyrir rúmum 38 árum, sennilega sumarið 1972 eða þar um bil (gæti jafnvel verið 1971). Á þessum árum bar bíllinn númerið R-1623, en síðar eftir að Geir keypti 300GE bílinn þá setti hann númerið á þann bíl, en R-10003 á þennan.
Það er ótrúlegt hvað þessar myndir eru vel varðveittar, sérstaklega litirnir, en ég skannaði þær beint af slides-filmu sem hafði verið geymd í lokuðu umslagi inni í skáp í allan þennan tíma. Það er engu líkara en að þessar myndir séu teknar í gær en ekki fyrir tæplea 40 árum, nema vegakerfið sýnir betur hvaða ár þetta er
[img]
http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj01.jpg[/img]
[img]
http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj02.jpg[/img]
Við Borgarfjörð
[img]
http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj03.jpg[/img]
Nálægt Borgarnesi.
[img]
http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj04.jpg[/img]
Drullusokkar á R-22 !!! ...en, vegakerfið var nú líka aðeins frumstæðara en það er í dag
[img]
http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj05.jpg[/img]
Tekið nálægt Borgarnesi, Hafnarfjall í baksýn.
[img]
http://fornbill.mbclub.is/img/R22/Borgafj06.jpg[/img]
Á leiðinni til baka, líklega í Hvalfirði.