Re: Mercedes-Benz 230CE 1992

#12
gmg skrifaði:Virkilega fallegur, til hamingju, þig vantaði alveg bíl :wink:
Já, svo furðulega sem það kann að hljóma, þá vantaði einmitt mig bíl :lol: :lol: ...er búinn að vera keyra trukk hér innanbæjar síðastliðin tvö ár sem eyðir á við 8cyl bíl en drífur varla upp Ártúnsbrekkuna nema með tilhlaupi. Var búinn að fá mig fullsaddan af því að nota hann í snattið og eftirleiðis veður hann bara notaður í fjallaferðir og þegar þungfært er eða semsagt í það sem hann er hannaður fyrir. Trukkurinn er nefnilega frábær fjallabíll sem ég tími ómögulega að selja. Hann er auk þess kominn í góðar hendur og verður skráður á annan eiganda og hreyfður reglulega, þó svo ég geti áfram gripið í hann þegar hans er þörf. Hinir tveir bílarnir eru síðan sparibílar og nýtast bara þegar vel viðrar. Að þessu sögðu má sjá að ég er að fullu búinn að sannfæra mig um það að mig vanti bíl :wink: :lol: :lol: :lol:

...líklega verður nú samt því miður einn af sparibílunum að víkja á þessu eða næsta ári. :( :cry:
Sveinn

Re: Mercedes-Benz 230CE 1992

#13
til lukku, þetta er sjúkdómur sem ekki allir skilja og fyrir þeim sem ekki skilja er nánast ómögulegt að útskíra :)
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

Re: Mercedes-Benz 230CE 1992

#16
Ztebbsterinn skrifaði:til lukku, þetta er sjúkdómur sem ekki allir skilja og fyrir þeim sem ekki skilja er nánast ómögulegt að útskíra :)
mercy skrifaði:Svo sannarlegat satt. Það skilja ekki allir mann (sérstaklega konan).
Jæja, þetta er nú bara áhugamál eins og hvert annað og yfirleitt kosta þau eitthvað. Ég hef oft sagt að ég er með minni fjárfestingu í bílnum en hinn venjulegi meðal-Jón á nýjum einum bíl á bílaláni. Ég á mína bíla sjálfur, hef keypt þá á ásættanlegu verði af því að þeir eru ekki glæ-nýir, dundað mér í þeim og gert þá betri og flottari. Þannig lít ég bara á þetta, ef ég væri t.d. í golfi þá væri alveg sami kostnaðurinn á ferðinni, félagsgjöld, vallargjöld, kjuðasett, outfit, golfferðir, fyrir utan allan tímann sem fer í þetta o.s.frv.. :wink: :)
Sveinn

Re: Mercedes-Benz 230CE 1992

#17
Björgvin B skrifaði:Rosalega fallegt boddí, hvaða bíll mun víkja ???????????????
Ekki verður það 6.3, þannig að þá er bara einn kostur í stöðunni. Annars tími ég ekkert að selja, það verður að viðurkennast. Það er bara skynsemin sem segir mér það, maður getur ekki átt allt :roll: :lol:
Sveinn

Re: Mercedes-Benz 230CE 1992

#20
Óli Kol skrifaði:Til hamingju með þennan glæsivagn Sveinn, mér datt strax í hug að þú værir búinn að versla þennan þegar að ég sá hann standa í stæðinu þínu upp á lynghálsi þar sem við vinnum :wink: bara flottur :clapping:
Takk fyrir, heyrðu, þetta er nú svolítið fyndið með þetta stæði. Ég byrjaði að leggja þarna af því að það getur enginn lagt við hliðina á mér og skellt í mig hurð (kannast ekki einhver hérna við þessar áhyggjur? :lol: ). Síðan hef ég reynt að leggja alltaf þarna og gert það í tvö til þrú ár. Um dagin þá var einn starfsmaðurinn upp aðeins á undan mér leggja í stæðið, sá mig svo þegar ég kom strax á eftir og sagði þá við mig voðalega neyðarlegur þegar hann steig út úr bílnum; "Ó, lagði ég í stæðið þitt? ...ég skal færa mig!" :lol: :lol: ...ég fór nú bara að hlæja!
Sveinn