Þakka ykkur fyrir. Sjálfur er ég mjög ánægður með gripinn. Alveg einstaklega ljúfur í akstri fyrir utan það að vera flottur
Þórður A. skrifaði:Flottur, hvar fannstu þennan?
Þennan bíl fann ég nú bara hérna:
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1
Þarna má sjá að ýmislegt glingur var búið að líma á mælaborðið, aukavið og krómlista. Eitthvað se ég var búinn að fjarlægja svona klukkutíma eftir að ég var búinn að eignast bílinn
hjalti.g skrifaði:Svakalega flottur, til hamingju með þennan
Grillið nýtur sín mikið betur núna

Já, þakka þér fyrir Hjalti, ég tók það aðeins í gegn, slípaði upp að innan og ryðvarði og málaði ristina eins og þú lagðir til. Það er aðeins grjótbarið, en bara alveg þokkalegt ef maður er ekki að rýna alveg í það. Þakka þér aftur fyrir!
Ásgeir Örn skrifaði:Ég elska þessa bíla, persónulega hefði ég nú fengið mér 24 ventla. En rosalega flottur bíll hjá þér!

Ef ég hefði verið að leita mér að leikfangi, þá hefði ég fengið mér 300CE24v, ekki spurning, en ég á víst nóg af þeim. Þessi er aðeins praktískari í snattið. Maður þarf að læra að hemja sig aðeins.

...mig vantaði bara hagkvæman brúksbíl, og ekki var verra að hann væri flottur fyrst maður haldinn þessari ólæknandi dellu
mercy skrifaði:Má ég spyrja á hvað þú keyptir hann ?
einnig hvar getur mað fengið svona gírhnúð?
Æi, höfum smá dulúð yfir verðinu, það er svo gaman

Þessi gírhnúður var nú bara í bílnum. Veit ekkert meira.
hjalti.g skrifaði:Sveinn, er þetta grái 199 liturinn eða er hann svartur

Liturinn er 199, alveg eins og á þínum
