Björgvin skrifaði:Hlynzi skrifaði:Jæja núna er búið að sjóða brettið á bílinn.
En heilsprautunin fær að bíða.
Þessi verður bara tættur í sundur eitthvert sumarið og tekið all hressilega í gegn eins og plönin voru, nema það gengur ekki að gera svoleiðis velá 6 vikum eins og mér datt upphaflega í hug.
Bíllinn verður frágenginn og málaður eins og hann var !
Svo fer ég út núna eftir 19 daga rúma (um mánaðarmótin) í skóla og pabbi verður með bílinn til að viðra hann af og til.
Meira um apparatið síðar, Extreme Makeover Car edition.
Vonum að þetta gerist næsta sumar.
Afhverju að sprauta bílinn aftur í sama lit og hann var ef þú ætlar að fara í það einhvern tímann í náinni framtíð að samlita hann???? Var hann ekki tjónaður og átti að mála hann fyrir þig? Er þá ekki vænlegra að láta þá sprauta það sem eyðilagðist í tjóninu í framtíðarlitnum þar sem þessi bíll er greinilega ekkert á leiðinni á götuna aftur í bráð í stað þess að sprauta hann gráan aftur (að neðan) og þurfa svo að setja pening í að samlita hann ÞEGAR þú ferð í samlitun og að koma honum á götuna aftur?
Kveðja
Búið að spá mikið í þessu og það var komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri þægilegara, ég hef ekki efni á að setja peninginn í þetta, því ég þarf að lifa úti í danmörku með skólanum.
Ég vil frekar láta laga hann svona í sama lit heldur en að hafa hann hálfkláraðann, því ég er ekki 100% á því hvenær ég hef tíma og hvort það verði pláss til að geyma allt draslið sundurtætt í bílskúrnum sem ég er að leigja.
Svo að heilmálunin mun frestast þangað til færi gefst á að klára verkið almennilega, þá verður farið yfir undirvagn og allt mekanískt þar, skipt út bremsurörum, slöngum og fl.
Mér líst ekkert á það að stinga af frá hálfkláruðu verki, en framhald síðar á því.