Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

#1
Enn og aftur verður breytt út frá þeirri venju að hafa "hittinginn" síðasta mánudaginn í mánuðinum.
Þess í staðinn verður samkoma miðvikudaginn 20. maí þar sem daginn eftir er frídagur (uppstigningardagur).
Ef veðrið verður gott og mætingin góð þá verður örugglega tekinn rúntur á eftir.

Við bjóðum alla velkomna á þessa samkomu klúbbsins óháð því hvort sem þeir aki um á Mercedes-Benz eða ekki. Ekki er heldur skylda að vera meðlimur í klúbbnum.
Það eina sem við setjum sem "skilyrði" er að menn hafi áhuga.

Staður og stund:
Smáralind - nýja bílahúsið við vesturenda Smáralindar
Ef veðrið verður gott þá verðum við jafnvel úti á efri hæðinni
Miðvikudagurinn 20. maí 2009, kl. 20:30

Ef einhverjar breytingar verða á staðsetningu þá verður það tilkynnt hérna.

Ef það eru einhverjir sérstaklega háir bílar í hópnum þá er innkeyrslan að austan hæst en þá er farið framhjá Select stöðinni og meðfram nýbyggingunni.

Hér er mynd af turninum eins og hann á að líta út:
[img]http://www.bygg.is/images/stories/verk/ ... _litil.jpg[/img] (af vef BYGG)

og hér er kort af Já.is sem sýnir staðsetninguna (MBKÍ logoið er þar sem bílastæðahúsið er)
[img]http://safnid.siminn.is/safnid/webui/_x ... t_OsS9KT3q[/img]


Benedikt Hans Rúnarsson