Síða 1 af 5

Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 15 Maí 2009, 23:45
frá Benni
Enn og aftur verður breytt út frá þeirri venju að hafa "hittinginn" síðasta mánudaginn í mánuðinum.
Þess í staðinn verður samkoma miðvikudaginn 20. maí þar sem daginn eftir er frídagur (uppstigningardagur).
Ef veðrið verður gott og mætingin góð þá verður örugglega tekinn rúntur á eftir.

Við bjóðum alla velkomna á þessa samkomu klúbbsins óháð því hvort sem þeir aki um á Mercedes-Benz eða ekki. Ekki er heldur skylda að vera meðlimur í klúbbnum.
Það eina sem við setjum sem "skilyrði" er að menn hafi áhuga.

Staður og stund:
Smáralind - nýja bílahúsið við vesturenda Smáralindar
Ef veðrið verður gott þá verðum við jafnvel úti á efri hæðinni
Miðvikudagurinn 20. maí 2009, kl. 20:30

Ef einhverjar breytingar verða á staðsetningu þá verður það tilkynnt hérna.

Ef það eru einhverjir sérstaklega háir bílar í hópnum þá er innkeyrslan að austan hæst en þá er farið framhjá Select stöðinni og meðfram nýbyggingunni.

Hér er mynd af turninum eins og hann á að líta út:
[img]http://www.bygg.is/images/stories/verk/ ... _litil.jpg[/img] (af vef BYGG)

og hér er kort af Já.is sem sýnir staðsetninguna (MBKÍ logoið er þar sem bílastæðahúsið er)
[img]http://safnid.siminn.is/safnid/webui/_x ... t_OsS9KT3q[/img]

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 16 Maí 2009, 00:49
frá hjalti.g
Ég mæti á dísel (aldrei slíku vant)

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 16 Maí 2009, 13:26
frá jeepson
Er þetta ekki bara sami staður og seinast Benni?

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 16 Maí 2009, 14:13
frá Benni
jeepson skrifaði:Er þetta ekki bara sami staður og seinast Benni?
Jú, en ef veðrið verður rosalega gott þá verðum við kannski á hæðinni fyrir ofan (úti við ;) ).

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 16 Maí 2009, 17:15
frá jeepson
Það væri auðvitað algjör snilld:D

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 17 Maí 2009, 19:07
frá Ásgeir Yngvi
já hvað segiði á að mæta á þetta eða?

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 17 Maí 2009, 20:24
frá J62
Ég kem á hittingin og er til í rúntt aftur Haffi gunn

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 17 Maí 2009, 21:30
frá jeepson
ég get víst ekki mætt. hellvídas stýrisdælan brotnaði áðan hjá mér:( ílla pirraður og argur núna. en ég ætla nú að vona að ég geti reddað annari dælu þannig að ég ætti að vera klár í júní. ef konan verður þá ekki á fæðingar deildinni.

Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind

Innsent: 17 Maí 2009, 21:31
frá Ásgeir Yngvi
já ef ég verð búinn að smyrja, þrífa og bóna vagninn þá getur vel verið að maður mæti ;)