#255
fráHlynzi
Jæja, eftir ágætis legu á netinu í dag hef ég komist að því að fyrirtækið Bournes virðist framleiða svona plötur, þær eru þó merktar RUF, en ég sendi email á RUF (Porsche tuning house) og þeir vildu ekkert koma nálægt þessu og hafa ekkert með þetta að gera
En Bournes er risafyrirtæki, er að bíða eftir svari frá þeim, ætla annars að bjalla í þá.
Ef það gengur ekki er hinsvegar fyrirtæki sem myndi senda mér nýtt gegn því að ég sendi þeim gamla svo þeir geti keypt það og gert það upp og selt áfram (semsagt ég fengi nýtt, og sel þeim mitt gamla)
Það er um 400-550 dollarar úti og samkv. ShopUSA reiknivélinni er það um 125 þús. kr heim komið, sem er MUUUN betra en 240 þús. kall frá umboðinu.