Henzel skrifaði:Bilaði hjá mér turning rate sensor í w210 árg 98 (parta númer A 00 542 65 18 )
hringdi í öskju svarið var 570.000kr halló er ekki allt í lagi hjá fólki, smella bara einu núlli aftan á verðið á heila lagernum þá borgum við húsið á no time hehe.
Fékk hlutinn frá UK á 30.000kr fullu greitt til landsins, þetta er eðlilegt verð. hringið bara og spyrjið um verðið á hlutnum ef þið trúið mér ekki.
Einar Jónsson
Þetta er reyndar ekki alveg rétt hjá þér Einar. Þessi tiltekni skynjari kostar 313 þús isk útúr búð hjá Öskju og er það glæpsamlegt verð fyrir svona lítin hlut.
Sumir hlutir, þar á meðal þessi, eru mjög dýrir í innkaupum. Þessi hlutur kostar útúr búð í USA yfir 2400 $ og eitthvað undir 2000 € í DE svo það sér það hver maður að þetta er ekki álagning frá umboðinu sjálfu í þessum tilvikum heldur er innkaupsverðið lýginni líkast.
Sömu sögu er að segja um sama skynjara í A bíl. Það mætti halda að Daimler sé að reyna að koma verstu módelunum að götunni
ATH, verið er að tala um "Original-Teile" ekki aftermarket ( þó það sé í sumum tilvika ekkert verra)
kv Jóhann