#12
Nákvæmlega.. Þetta gæti verið eitthver sem varð pirraður af því að hann fékk ekki afgreiðslu á þeirri sekúndunni sem honum líkaði og ákvað að skálda upp söguna eða skreyta eitthvað sem miður fór. Ég myndi vilja fá að vita hver þessi nafnlausi er áður en ég fer að trúa einu einasta orði sem hann segir.Gizmo skrifaði:Nákvæmlega, ekkert að marka svona nafnlaust bull.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...

#13
Er ný búinn að fara með B200 Benzan í árs skoðun hjá Öskju. Sú skoðun kostaði ca 30000 með olíuskiptum. Er alveg sáttur við það.
#14
Ég fór með Vito-inn fyrir helgi í Öskju til þess að láta laga lítilræði í handbremsunni. Kostaði skitnar 7000 krónur tæpar.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019
GSM:6990019
#15
Ég er alveg sammála því að sé ekki nafn til að bakka svona sögur upp, þá er lítið mark takandi á þeim.
Vona bara að það sé önnur hlið á málinu, því kannski var þessi einstaklingur t.d. með dónaskap við starfsmenn Öskju og skapaði sér óvildar sem skýrir framkomuna, án þess þó að ég hafi hugmynd um það. Það er bara yfirleitt alltaf önnur hlið á málinu, þó hún sé kannski ekki akkúrat þessi.
Það er hinsvegar hagur hvers fyrirtækis að virða viðskiptavininn, hvort sem hann hefur rétt eða rangt fyrir sér og skilja ekki við hann óánægðann. Ágreining má yfirleitt alltaf leysa og er það best að þeir geri það sín á milli sem hlut eiga að máli. Það eru nefnilega miklu meiri líkur á því að sá sem er óánægður komi skoðun sinni á framfæri en sá sem er ánægður. Sá sem er óánægður vill láta í sér heyra, en sá sem er ánægður er bara sáttur hefur ekki sömu þörf á að koma því á framfæri.

Sveinn
Benz umboðið
#16Góðan daginn.
Ég var að lesa greinina um Öskju og það er mikið til í þessu með framkomu starfsfólksins. Ég kom þar við í endaðann Ágúst síðast liðinn og vantaði framljósaperu í Benzann, sem er E320 ´99 Avantgarde, Bi-Xenon peru. Ég hringdi viku áður en ég kom og var sagt að verðið væri um 14þúsund. Ég var mjög sáttur við það að peran hafði hækkað sáralítið frá því að ég fjárfesti í Bosch peru á 12þúsund hjá Ræsi um 20 mánuðum áður. Allt í lagi með það. Ég mætti á staðinn viku eftir að ég hringdi og þurfti að bíða í um 20-30 mínútur eftir að einhver hefði tíma til að afgreiða mig. Svo loksins kom afgreiðslumaður, kurteis og vildi allt fyrir mig gera. Fínt og flott. Mig vantar eina framljósaperu og gaf upp bílnúmerið og afgreiðslumaðurinn kom með peruna.
Verð á Bi-Xenon peru frá Bosch um 23þúsund.
Auðvitað hikstaði ég aðeins og spurði hvort þetta væri rétt verð. Afgreiðslumaðurinn játaði því. Ég sagði þá við hann að mig vantaði eina peru , það væri ekki á áætlun hjá mér að kaupa hlut í fyrirtækinu og ég benti honum á það að verð á þessari peru hefði verið 14Þúsund viku áður.
Peruna fékk ég á endanum á 17þúsund, í komin.
Ég var ánægður með að þeir skiptu um peruna fyrir mig. Það vað kannski eins gott, því ég fékk vitlausa peru hjá þeim.
Þetta er ekki í eina skiptið sem þeir hjá Öskju hafa feilað sig á varahlutum í bílinn hjá mér.
Það var farið að smita út með pinjóninum á drifköglinum. Ég fór til þeira í Öskju og bað um pinjónspakkdósina. Gaf upp bílnúmerið og allt í góðu. Þegar ég fékk 2 pakkdósir (til að eiga vara ef eitthvað klikkaði í samsetningu hjá mér) þá spurði ég afgreiðslumanninn hvort þetta væri ÖRUGGLEGA rétt pakkdós. Það var litið á mig eins og einhvern hálfvita og sagt JÁ. Allt í lagi með það. Ég fer heim og ríf gömlu dósina úr og hvað sé ég? Pakkdósirnar sem ég fékk passa EKKI. Nú voru góð ráð dýr. Ég bý í Vestmannaeyjum og eru samgöngur oft á tíðum stopular vegna veðurs. Ég hringdi í Öskju og sagði þeim að ég hefði fengið vitlausar pakkdósir og vantaði rétta pakkdós STRAX. Bíllinn inn á verkstæði og allt í volli. Þeir mega eiga það að þeir skutluðu réttu pakkdósinni út á flugvöll og kom hún seinni partinn með fluginu og var bíllinn kláraður daginn eftir.
Eins og gefur að skilja var ég ekki brosandi þegar ég var kominn með varahlutinn í hendurnar og svo passaði hann ekki. Getur það verið að viðkomandi starfsmaður hafi litið eitthvað vitlaust á myndina í tölvunni eða að sé einhver vitleysa í teikningunni. Ég spyr þá sem hafa einhverja þekkingu á þessu.
Hafiði það gott um jólin, borðið vel og mikið og akið varlega.
Jólakveðjur frá Vestmannaeyjum:lol:
Guðmundur Sigurðsson.
email:stalstjarna@gmail.com.

#17
gætum talað um N 1 líka 
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR
GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR
GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO
#20
hjalti.g skrifaði:Mér sýnist nú flestir kollegar mínir í leiguakstrinum vera frekar ósáttir við verðlagningu hjá Öskju en flestir jafnframt fengið ágætis þjónustu. Það er auðvitað ekkert eðlilegt að rukka 16.000 krónur á tímann á svona verkstæði.
Hvernig réttlæta menn svona, eru lögfræðingar að vinna við viðgerðir í Öskju ???