Dráttarkrókar fyrir MB fólksbíla
#1Er einhver sem veit hver framleiðir original dráttarkróka fyrir MB? Ég er þá að hugsa um W220 bíl
13 pinna tengil færðu í N1BaraBenz skrifaði:Já, ég ætla að setja krók sem sést ekki. Þarf að þvælast um Evrópu með kerru.
Hér í Öskju er mér sagt að það kosti um 350.000 efnið fyrir utan ísetningu.
Það dýrasta sem ég finn úti er um 1000 € með rafmagnsbúnaði en fyrir utan ísetningu.
Westfalia virðist ekki vera með króka fyrir S (W220) bílana, flest aðra þó. Eina sem ég finn er Brink og Oris.
Svo virðist líka vera vandamál með að finna rafmagnsbúnaðinn (13 pinna).
Brink segir að það verði að vera original MB búnaður.
Langaði bara að vita hver framleiðir þetta fyrir MB áður en stjarnan kemur á það. Munar sennilega helming í verði.