Síða 1 af 2
Dráttarkrókar fyrir MB fólksbíla
Innsent: 11 Sep 2008, 22:08
frá BaraBenz
Er einhver sem veit hver framleiðir original dráttarkróka fyrir MB? Ég er þá að hugsa um W220 bíl
Innsent: 12 Sep 2008, 00:16
frá andrz
Ætlaru að setja dráttarkrók á S-class?
Innsent: 12 Sep 2008, 00:30
frá Mercedes-Benz
"Westfalia" nafnið hef ég séð á eitthverjum MB krókum. (ekki viss um að þetta sé rétt stafsett samt)
Innsent: 12 Sep 2008, 13:50
frá BaraBenz
Já, ég ætla að setja krók sem sést ekki. Þarf að þvælast um Evrópu með kerru.
Hér í Öskju er mér sagt að það kosti um 350.000 efnið fyrir utan ísetningu.
Það dýrasta sem ég finn úti er um 1000 € með rafmagnsbúnaði en fyrir utan ísetningu.
Westfalia virðist ekki vera með króka fyrir S (W220) bílana, flest aðra þó. Eina sem ég finn er Brink og Oris.
Svo virðist líka vera vandamál með að finna rafmagnsbúnaðinn (13 pinna).
Brink segir að það verði að vera original MB búnaður.
Langaði bara að vita hver framleiðir þetta fyrir MB áður en stjarnan kemur á það. Munar sennilega helming í verði.
Innsent: 12 Sep 2008, 14:46
frá Ásgeir Yngvi
Hvernig má það vera að efnið kosti 350.000 kr ???
Já jafnvel mér finnst þeir stundum ofrukka bara því það er með benz merki

Innsent: 12 Sep 2008, 17:44
frá hjalti.g
BaraBenz skrifaði:Já, ég ætla að setja krók sem sést ekki. Þarf að þvælast um Evrópu með kerru.
Hér í Öskju er mér sagt að það kosti um 350.000 efnið fyrir utan ísetningu.
Það dýrasta sem ég finn úti er um 1000 € með rafmagnsbúnaði en fyrir utan ísetningu.
Westfalia virðist ekki vera með króka fyrir S (W220) bílana, flest aðra þó. Eina sem ég finn er Brink og Oris.
Svo virðist líka vera vandamál með að finna rafmagnsbúnaðinn (13 pinna).
Brink segir að það verði að vera original MB búnaður.
Langaði bara að vita hver framleiðir þetta fyrir MB áður en stjarnan kemur á það. Munar sennilega helming í verði.
13 pinna tengil færðu í N1

Innsent: 12 Sep 2008, 19:10
frá BaraBenz
Fyrir Benz? Sem tengist inn á kerfið í bílnum og slekkur á bakkvörninni (PDC) t.d. Og ruglar ekki skynjun á ástandi pera. Þetta kostar um 500€ úti og þeir væru nú ekki að selja það ef hvaða 13 pinna tengi sem er gengi.
Innsent: 12 Sep 2008, 19:26
frá andrz
Að setja dráttarkrók á S class er eins og að hafa útikamar á flugvél, alveg afleitt.
Innsent: 12 Sep 2008, 19:44
frá BaraBenz
Útikamar á flugvél sést. Krókur á S-bíl sést ekki nema þegar hann er í notkun.
Innsent: 13 Sep 2008, 12:48
frá JBV
Finnst bara ekkert að því þó menn setji krók á S-class.
