vandræði með xenon
#1sælir, var að setja xenon í w124 og allt virkar fínt nema að ég finn ekki tengið fyrir háu ljósin í bílnum, getur einhver sagt mér hvar þau eru staðsett??
Mér sýnist að háu ljósin virki rétt. Eina ráðið til að láta lágu Xenon ljósin virka rétt er að aftengja þau og rífa úr bílnum.Árni91 skrifaði:sælir, var að setja xenon í w124 og allt virkar fínt nema að ég finn ekki tengið fyrir háu ljósin í bílnum, getur einhver sagt mér hvar þau eru staðsett??
Ég er nú býsna rólegur að eðlisfari.Gizmo skrifaði:Alveg rólegur Loki, það er EKKERT í lögum á Íslandi sem bannar þetta. Meira að segja Lögreglan notar þetta í bíla hjá sér.
Vertu svo maður til að vera með stóru orðin skrifandi undir með nafni þínu og símanúmeri.
Það vill svo skemmtilega til að ég á Philips Xenon K4300 kerfi í H4 Halogen ljós keypt í N1 2008, ekki fengið athugasemd í skoðun hingað til og tek þau ekki úr nema fá hana þannig er það nú bara.Loki skrifaði:Ég er nú býsna rólegur að eðlisfari.Gizmo skrifaði:Alveg rólegur Loki, það er EKKERT í lögum á Íslandi sem bannar þetta. Meira að segja Lögreglan notar þetta í bíla hjá sér.
Vertu svo maður til að vera með stóru orðin skrifandi undir með nafni þínu og símanúmeri.
Ljósabúnaður bíla á Íslandi þarf einfaldlega að uppfylla sömu kröfur og annarsstaðar í Evrópu.
Lögreglan hefur sjaldnast verið gott fordæmi.
Athygli vekur að þú reynir ekki að bera í bætifláka fyrir tæknilegan þátt málsins.
Ég ek sjálfur Benz með original xenon ljósum og líkar vel, -en þar er um að ræða ljós sem hönnuð eru fyrir þann ljósgjafa.
Ég er skráður notandi og hægt um vik að fletta mér upp.
Ég legg metnað minn í að blinda ekki þá sem ég mæti á þjóðveginum og finnst það rakinn dónaskapur að setja vísvitandi ólöglegan og hættulegan ljósabúnað í bíla.
Ég verð að viðurkenna að mér finst þeir sem vísvitandi aka um með blindandi ljósabúnað vera að gefa þá yfirlýsingu að þeim sé "skítsama þótt þeir blindi aðra ökumenn".
Finnst þér ekki lílegt að Philips, Osram, Bosch, Hella osfrv væru að selja xenon kitt í bílförmum ef það væru lögleg viðskipti?
Ekki ætla ég að fullyrði um löghlýðni Bjarna Ben og hans fyrirtækja.Olbogi skrifaði: Það vill svo skemmtilega til að ég á Philips Xenon K4300 kerfi í H4 Halogen ljós keypt í N1 2008, ekki fengið athugasemd í skoðun hingað til og tek þau ekki úr nema fá hana þannig er það nú bara.
Ég vil taka fram að ég hef ekki haft uppi skæting gagnvart nafngreindum mönnum.Gizmo skrifaði:LOKI, hættu þessu RÖFLI, þínar skoðanir eru ekki landslög og vertu ekki með þessa stæla þegar þú ert ekki einusinni maður til að skrifa undir skrif þín með fullu nafni þínu.