Benni skrifaði: Rétt að við erum með aðrar reglur, t.d. hvað varðar breytta bíla (kæmi mér nú ekki á óvart að "ESB umsóknarnefndin" muni ekki setja það sem skilyrði af okkar hálfu í umsóknarferlinu

).
Ég er nú ekki hræddur um að þurfa að skipta um dekk á G wagninum við Inngöngu í ESB.
Á meðan Bretar fá að keyra öfugu megin og stýra úr "farþegasætinu" þá er ekki ástæða til að stoppa jeppabreytingar okkar.
Eina raunverulega ógnin við jeppabreytingar hér er léleg bremsugeta bíla þar sem dekk hafa verið stækkuð mikið.
Það er ekki ólíklegt staða að e-h tíma verði sóðaleg aftanákeyrsla þar sem breyttur bíll á mjög stórum dekkum þrumar yfir lítt brynvarða vegfarendur við aðstæður þar sem stoppa hefði mátt sambærilegan bíl á upphaflegri dekkjastærð. Atburður af þessu tagi gæti haft með sér allskonar takmarkanir og/eða akstursbönn á breytta jeppa, óháð ESB.
Ég veit að AT breytti fjölmörgum G wögnum fyrir Norska herinn og enduðu þeir í 4 tonnum og 36" dekkjum og bremsuðu ekki rassgat!
Þessu var einfaldlega reddað með því að útbúa glussatjakk sem hjálpaði höfuðdælunni. Tjakkurinn var knúinn af stýrisdælunni og var óháður öðrum hlutum bremsubúnaðirinns og mátti klikka án þess að breyta fyrri bremsugetu.
Langtímahagsmunir jeppamanna felast því í hertari reglum um bremsugetu.
Einfaldast væri að við breytingaskoðun væri farið út á kvartmílubraut, druslurnar keyrðar í 90 skv GPS og mælt hvað tekur langan tíma að stöðva.(ræsa mætti skeiðklukku með rofa ofaná bremsupedala) Stöðvunartíminn væri svo leiðréttur miðað við mismun á þyngd bílsins við prófun og leyfðri hámarksþyngd bílsins og allir bílar þyrftu að ná undir e-h ákveðið tölugildi.
Með þessu móti er hægt að komast framhjá smásmugulegri reglugerð um hvað má og hvað ekki. Krafan væri einfaldlega sú að bremsurna virki vel og prófið er til að sanna málið.