Síða 1 af 5

vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 02:14
frá Árni91
sælir, var að setja xenon í w124 og allt virkar fínt nema að ég finn ekki tengið fyrir háu ljósin í bílnum, getur einhver sagt mér hvar þau eru staðsett??

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 08:36
frá Loki
Árni91 skrifaði:sælir, var að setja xenon í w124 og allt virkar fínt nema að ég finn ekki tengið fyrir háu ljósin í bílnum, getur einhver sagt mér hvar þau eru staðsett??
Mér sýnist að háu ljósin virki rétt. Eina ráðið til að láta lágu Xenon ljósin virka rétt er að aftengja þau og rífa úr bílnum.
Þetta er ólöglegur búnaður allstaðar í heiminum og stórvarasamt að mæta bílum með þessum búnaði í myrkri.
Ef þú vilt gera þetta eins og maður þá þarf að skipta um ljósin, þ.e. spegla og gler.
Takið eftir að ENGINN alvöru framleiðandi selur xenon kit sem ætluð eru í halogen kúpla og ENGINN alvöru söluaðili selur þetta drasl.
Þetta eru allt e-h kínadrasl sem selt er undir borðið af drullusokkum á spjallsíðum.

Lestu þetta:
http://www.danielsternlighting.com/tech ... sions.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Gerðu þér grein fyrir því að með því að segjast setja xenon kitt í þinn bíl, þá ertu að lýsa því yfir að þér þyki sjálfsagt að lýsa framan í alla þá sem þú mætir í umferðinni.
Slíkt á að kalla réttum nöfnum:
-Helvítis dónaskapur.

Góðar stundir

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 10:28
frá Gizmo
Alveg rólegur Loki, það er EKKERT í lögum á Íslandi sem bannar þetta. Meira að segja Lögreglan notar þetta í bíla hjá sér.

Vertu svo maður til að vera með stóru orðin skrifandi undir með nafni þínu og símanúmeri.

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 11:50
frá Loki
Gizmo skrifaði:Alveg rólegur Loki, það er EKKERT í lögum á Íslandi sem bannar þetta. Meira að segja Lögreglan notar þetta í bíla hjá sér.

Vertu svo maður til að vera með stóru orðin skrifandi undir með nafni þínu og símanúmeri.
Ég er nú býsna rólegur að eðlisfari.
Ljósabúnaður bíla á Íslandi þarf einfaldlega að uppfylla sömu kröfur og annarsstaðar í Evrópu.
Lögreglan hefur sjaldnast verið gott fordæmi.
Athygli vekur að þú reynir ekki að bera í bætifláka fyrir tæknilegan þátt málsins.
Ég ek sjálfur Benz með original xenon ljósum og líkar vel, -en þar er um að ræða ljós sem hönnuð eru fyrir þann ljósgjafa.

Ég er skráður notandi og hægt um vik að fletta mér upp.
Ég legg metnað minn í að blinda ekki þá sem ég mæti á þjóðveginum og finnst það rakinn dónaskapur að setja vísvitandi ólöglegan og hættulegan ljósabúnað í bíla.

Ég verð að viðurkenna að mér finst þeir sem vísvitandi aka um með blindandi ljósabúnað vera að gefa þá yfirlýsingu að þeim sé "skítsama þótt þeir blindi aðra ökumenn".

Finnst þér ekki lílegt að Philips, Osram, Bosch, Hella osfrv væru að selja xenon kitt í bílförmum ef það væru lögleg viðskipti?

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 12:13
frá Loki
Það má vera að sumum finnist ég harðorður um xenon kitt fyrir halogenljós.
Sjálfsagt hafa margir keypt þetta í góðri trú og hreinlega verið plataðir.

Niðurstaðan er hinsvegar alltaf sú sama:
Þetta er bæði ólöglegt og óæskilegt í umferðinni.

Xenon ætti aldrei að nota í sambyggð há/lág ljós sem ætluð eru fyrir halogen.

Xenon á aldrei að nota í lág ljós sem ætluð eru fyrir halogen.

Xenon má hugsanlega nota í háu ljósin ef menn er vakandi yfir því að lækka þau tímanlega áður en bílum er mætt.
Þrátt fyrir aukið ljósmagn umfram halogen, -er hætt við því að hái geislinn lýsi of mikið nálagt bílnum og skerði því í raun útsýni lengra fram á veginn.

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 12:37
frá Olbogi
Loki skrifaði:
Gizmo skrifaði:Alveg rólegur Loki, það er EKKERT í lögum á Íslandi sem bannar þetta. Meira að segja Lögreglan notar þetta í bíla hjá sér.

Vertu svo maður til að vera með stóru orðin skrifandi undir með nafni þínu og símanúmeri.
Ég er nú býsna rólegur að eðlisfari.
Ljósabúnaður bíla á Íslandi þarf einfaldlega að uppfylla sömu kröfur og annarsstaðar í Evrópu.
Lögreglan hefur sjaldnast verið gott fordæmi.
Athygli vekur að þú reynir ekki að bera í bætifláka fyrir tæknilegan þátt málsins.
Ég ek sjálfur Benz með original xenon ljósum og líkar vel, -en þar er um að ræða ljós sem hönnuð eru fyrir þann ljósgjafa.

Ég er skráður notandi og hægt um vik að fletta mér upp.
Ég legg metnað minn í að blinda ekki þá sem ég mæti á þjóðveginum og finnst það rakinn dónaskapur að setja vísvitandi ólöglegan og hættulegan ljósabúnað í bíla.

Ég verð að viðurkenna að mér finst þeir sem vísvitandi aka um með blindandi ljósabúnað vera að gefa þá yfirlýsingu að þeim sé "skítsama þótt þeir blindi aðra ökumenn".

Finnst þér ekki lílegt að Philips, Osram, Bosch, Hella osfrv væru að selja xenon kitt í bílförmum ef það væru lögleg viðskipti?
Það vill svo skemmtilega til að ég á Philips Xenon K4300 kerfi í H4 Halogen ljós keypt í N1 2008, ekki fengið athugasemd í skoðun hingað til og tek þau ekki úr nema fá hana þannig er það nú bara.

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 13:24
frá Loki
Olbogi skrifaði: Það vill svo skemmtilega til að ég á Philips Xenon K4300 kerfi í H4 Halogen ljós keypt í N1 2008, ekki fengið athugasemd í skoðun hingað til og tek þau ekki úr nema fá hana þannig er það nú bara.
Ekki ætla ég að fullyrði um löghlýðni Bjarna Ben og hans fyrirtækja.
N1 selur t.d. LED park og bremsuljósaperur með merkingunni "off road only" og selur halogen perur með hærri wattatölu en löglegt er í umferðinni. þessi búnaður er að sjálfsögðu löglegur allstaðar annarstaðar en í umferðinni.
Fór samt inná heimasíðu Philips og þar stendur skýrum stöfum við allar xenon perur:
"This product is suitable only for vehicles with the Xenon HID system already installed. This is a direct STANDARD replacement, not an upgrade."
Þar er kyrfelega vísað til þess að perurnar eigi eingöngu heima í ljósum sem hönnuð eru fyrir xenon ljósgjafa.

Ef þú lest greinina í hlekknum mínum hér að ofan þá er minnst á að xenon kit séu oft með e-h merki frá þekktum framleiðendum þar sem e-h hlutar búnaðirins eru þaðan.

Grunnatriðið er að ljósgjafi xenon ljóssins er allt öðruvísi en glóþráður í halogen peru.
Það er einfaldlega ljósfræðilega ómögulegt að láta gler og spegla sem hannaðir eru fyrir halogen peru, lýsa rétt með xenon ljósgjafa.

Það skiptir því engu máli með hvað glysorðum þessir Ding-Dong kallar merkja glingrið.

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 14:07
frá Gizmo
Tengið fyrir háa og lága er það sama í 124, hann er með H4 original. Ertu viss um að peran sem þú ert með sé 2ja geisla ? Þetta á að vera mjög plögg-og-play að koma þessu í.

LOKI, hættu þessu RÖFLI, þínar skoðanir eru ekki landslög og vertu ekki með þessa stæla þegar þú ert ekki einusinni maður til að skrifa undir skrif þín með fullu nafni þínu.

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 14:31
frá Árni91
takk fyrir þetta gizmo, veit ekkert hvort þessar perur sé 2ja geisla, þær voru í hanskahólfinu þegar ég keypti bílinn og ég keypti bara kerfið og pluggaði þessu í og Loki mér er bara skítsama hvað þér fynnst um Xenon, ég bað um hjálp hér og það er það sem ég ætlast til að fá, ekki eitthvað skítkast um að Xenon ljós séu ólögleg, sem þau eru btw ekki!!

Re: vandræði með xenon

Innsent: 18 Nóv 2010, 14:31
frá Loki
Gizmo skrifaði:LOKI, hættu þessu RÖFLI, þínar skoðanir eru ekki landslög og vertu ekki með þessa stæla þegar þú ert ekki einusinni maður til að skrifa undir skrif þín með fullu nafni þínu.
Ég vil taka fram að ég hef ekki haft uppi skæting gagnvart nafngreindum mönnum.
Það er ekki snúið að fletta mér upp hér á síðunni ef þér finnst miklu skipta að geta skensað mig undir fullu nafni.
Það vekur hinsvegar eftirtekt að þú getur ekki gagnrýnt minn texta efnislega og vilt frekar nota orðin "röfl" "stæla" og skammast yfir nafnleysi skrifara.
Það hljóta allir lesendur að gera sér grein fyrir því að ég set ekki lög í landinu.
Reglur um ljósabúnað eru einfaldlega Evrópskar og það er óþarfi að deila um staðreyndir.

Ég efa ekki að menn séu ánægðir með Xenon kitttin sín í halógenljósunum. -Jafnvel dökkbláu 8000K perurnar sem nýtast augum illa en eru jafn truflandi og hinar. Ég er hinsvegar ekki ánægður með að fá drjúgan hluta geislunarinnar beint í augun.
Frelsi eins hlýtur að takmarkast við það að hann sé ekki farinn að skaða aðra.

Er eitthvað í greininni hjá Daniel Stern sem þú telur rangt?