sit uppi með bíl =/

#1
jæja stjörnufelagar. ég lennti í þvílika veseninu í dag =/
var að prufa bíl a bilasölu. nánar tiltekið Subaru Imprezu WRX sem er með STI motor eða eitthvað svoleiðis.. flottur bill að morgu leiti. en það er smá vesen.. eg var að keyra útaf bílastæði sem ég var að snua við a tilþess að fara til baka upp á bilasölu..
ég er að taka af stað og er i fyrsta gír og var buinn að sleppa kuplinguni og ætla að smeigja mér a milli svona. "svína" bíl utaf bílastæðinu..
allavegana þá er ég buinn að taka af stað og gef bilnum dáldið inn. en um leið og turbinan kikkar inn þá bara %#/$%"(/)$"&#!(!=brothljóð :?

þá var ég vist ekki nægilega í 1gir. en samt þannig að hann tok i hann og þegar aflið kom inn þá þurkast allar tenurnar úr fyrstagírs tannhjólinu =/

eg næ að keyra bilinn uppá sölu aftur í 3 gír og vogaði mér ekki að skipta um gír..
þegar eg kom uppá sölu þa hélt ég að þetta yrði nu ekki mikið mál.. bara lélegur þjösnaður kassi sem væri á siðasta snuning.. og þessvegna yrði ég kannski ekki botaskildur..
en allt kom fyrir ekki.. það var kallað subarukall að nafni jon bergs. og hann tjáði mér það að hann hefði tekið upp kassann i þessum bil fyrir 2manuðum siðan. og það væri hægt að sanna það fyrir mér.. allt nytt í kassanum og svo frammvegis..
þannig að eftir nokkrar samningaviðræður og pinulitinn grát þá endaði ég með því að eignast þessa forlátu subaru bifreið...

en herna er smá spurning.. Á svona nyupptekin kassi bara að fara?? á hann ekki bara að hrökkva úr gírnum ef maður hittir ekki rett i hann? ekki bara tortíma fyrsta gírnum..

það kostar 230þusund að gera við kassann.. ég meina.. fokk =/

hvað segiði með þetta?


Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

#2
Frekar skrítið, ég er ekki að trúa því að tannhjólið hafi farið í mauk þegar túrbínan kom inn (meina það er nú ekki það ofsafenginn kraftur í þessari vél)
Ef þessi kassi var gerður upp fyrir 2 mánuðum myndi ég kalla það frekar lélegt að hann endist ekki þann 3, nema þetta hafi bara verið í rallakstri alla daga.

Og p.s. IH er án gríns dýrasta varahlutaumboð á landinu.

Vinur minn var með Nissan með bilað syncro fyrir 2 gír, það kostaði 140 þús. allt sem þurfti í kassann hjá IH, en nýr kassi kominn heim kostaði aðeins 100 þús.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

#3
Ég er sammála Hlyni. Það að þessi kassi skuli hafa verið nýupptekinn er frekar léglegt.

Annars er þetta bölvuð ólukka hjá þér, Manst það bara vonandi næst að halda þig frá loftpressunum.
Seinast breytt af messinn þann 29 Mar 2008, 00:19, breytt 1 sinni alls.
Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn

#6
eg veit ekki hvort það sé einhver afsökun hlynzi en þessi bill er víst með 300hestafla STI motor en bara venjulegum WRX kassa sem er fyrir 218hestafla motor eða eitthvað..
EN...... það versta við þetta allt saman að ég þarf að fórna benzanum fyrir þetta helvíti :(
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

#8
camusxo skrifaði:ég hefði haldið að svona slys væri bara tryggingamál

finnst amk frekar skrítið að þú hafir neyðst til að kaupa bílinn eftir þetta...
bilasalan var ekki tryggð fyrir þessu
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

#9
E-cdi skrifaði:eg veit ekki hvort það sé einhver afsökun hlynzi en þessi bill er víst með 300hestafla STI motor en bara venjulegum WRX kassa sem er fyrir 218hestafla motor eða eitthvað..
EN...... það versta við þetta allt saman að ég þarf að fórna benzanum fyrir þetta helvíti :(
Nei spurning, maður myndi þó halda að kúplingin myndi ekki halda við aukið afl frekar en tannhjólin.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

#10
E-cdi skrifaði:eg veit ekki hvort það sé einhver afsökun hlynzi en þessi bill er víst með 300hestafla STI motor en bara venjulegum WRX kassa sem er fyrir 218hestafla motor eða eitthvað..
EN...... það versta við þetta allt saman að ég þarf að fórna benzanum fyrir þetta helvíti :(
Kveikir bara í þessu Imprezu drasli, annað eins hefur nú verið gert til að redda málunum :roll:
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel
cron