þetta var skemmtileg lesning, en þú hafðir mig í halloÞorvaldur skrifaði:Eitt sem ég fatta ekki alveg.....þú talar um að neyðast til að selja stoltið þitt,Benzann vegna þess að þú varst höstlaður í að kaupa Subaru. Afhverju selurðu ekki bara Súbann? Ertu að segja alveg satt? Ertu ekki aðeins meira en pínu skotinn í Subaru? Afhverju þarf að selja Benzann þótt þú sért píndur í að kaupa annan bíl? Ertu þá að viðurkenna að þau kaup hafi verið mistök en ef þú selur Benz þá heldurðu andlitinu? Þannig lítur þessi röksemdafærsla fyrir mér allavega. Ef þú viðurkennir að þig langi að prófa grasið hinu megin og þeytast á Subaru í einhvern tíma þá er það alveg ok. Þarf ekki þetta drama í kringum það. Persónulega myndi ég bara reyna að selja flakið með brotnum fyrsta gír og slá vel af. Það er alls ekki öruggt að það takist yfirhöfuð að koma í veg fyrir þennan galla. Eins og Stjörnufélagar hafa bent hér fyrr í þessum þræði þá á svona bíll að þola smá þjösnaskap og STI kassi þarf líklegast að komast í bílinn svo að þetta verði til friðs. Hvað ætlar þú td að gera þegar búið er að raða tannhjólunum aftur í kassann og einhver kaupir hann grunlaus og vikuna eftir er allt stopp. Ef ég keypti svona bíl og kassinn td bilaði innan viku myndi ég nú reyna að fá 50/50 frá fyrri eiganda vegna galla. Ef næsti eigandi les þennan þráð og kemst að því að þetta er viðvarandi galli í bílnum þá er kominn góður grunnur á að rifta kaupum. Svo getur þú líka hugsað hvað þú hefðir gert ef þetta hefði ekki gerst hjá þér í akstrinum. Þú hefðir keypt bílinn hugsanlega og á heimleiðinni hefði þetta gerst. Tel mjög líklegt að þá hefðir þú snappað á seljandann og heimtað hlut í viðgerð eða bara skilað bílnum. Að bílasalinn sé góði gæinn en seljandinn slæmi er bara dæmigert "Good Cop,Bad Cop" leikur. Góða löggan er bílasalinn sem reynir að miðla málum en vonda löggan er eigandinn sem setur þér einhverjar reglur í þessu. Að eigandinn hafi eitthvað öskrað og ekki tekið í mál að kassinn yrði bættur bendir einmitt til þess sem Reynir Ari segir að gaurinn sé orðinn sjálfur þreyttur á kassavandamálum. Það er nú ekki eins og gírkassinn hafi verið hrein mey og þú hafir slátrað honum. Það var búið að fara í hann áður svo afhverju í ósköpunum átti hann ekki að samþykkja bætur fyrir þetta. Hefði skilið ef þú hefðir straujað strætó á bílnum og ætlaðir að láta frænda þinn rétta hann en þetta eru tannhjól í gírkassa sem hefur þegar verið opnaður. Bílasalinn á að vera hlutlaus í þessu og það hallar töluvert á þig þarna. Afhverju bílasalinn lét stjórna sér af æstum eiganda veit ég ekki. Er þetta málið hver æsir sig mest? Nema þá að þig hafi langað í bílinn en trúðu mér að sjaldan er ein báran stök í svona. Þú verður alltaf hugsandi um atvikið þegar þú hreinsaðir fyrsta gírinn út og þorir aldrei að beita þessum bíl. Þetta verður eins og baldinn hestur sem hefur hennt þér af baki. Þú treystir honum ekki. Sveinn talar um að bíllinn eigi að þola smá átök og það er alveg rétt. Þetta á að virka. Held að allir sem skrifi hérna hafi eitthvað til síns máls. Það hefði hugsanlega verið ok að borga helming i þessu og á slæmum degi borga alla viðgerðina eins og GUMMCO segir. En það er betra að missa lim en líf og hræðilegur kostur að sitja uppi með gírkassabrjót og bera ábyrgð á honum. Þú berð td upplýsingaábyrgð gagnvart næsta eiganda. Svo að ef hugsanlegur kaupandi spyr þig : Hafa verið kassavandamál með bílinn þá ertu orðinn ábyrgur ef þú segir honum ekki satt. Þú þarft ekki að greina honum frá því nema að hann spyrji en ætlarðu þá að segja : Já passaðu á þig að hafa hann pottþétt í gírnum þegar þú mökkar af stað. Annars eru mánaðarlaunin farinn félagi....
nei segi svona. sko mig langar dálitið í AWD turbo bil. en þegar ég prufaði þennan bil þa var ég bara að spá.. var ekki með það í huga að kaupa því hann er svo gamall.. mig langar í yngri bíl en 2001
Benzinn minn er buinn að vera til solu vegna þess einmitt að mig langar i meiri leiktæki..
eg er þessi gaur sem þarf að geta beitt bilnum aðeins. enda buinn að eiga Mustang, Trans am og svo fullt af GTI bílum i gegnum tiðina en ég þori ekkert að beita benzanum. hann er alltof dýr og ég ber of mikla virðingu fyrir Mercedes benz til þess að djoflast á honum..
mer þykir vænt um benzann. en ég er buinn að hugsa þetta mál, og það er betra að borga 28þusund af bil á manuði frekar en að borga hátt í 70þus á manuði
en eins og ég segi.. þá brotnaði kassinn því hann hrökk ekki ur gírnum þegar hann var ekki nægilega í honum =/ and than again þá finnst mér það stórfurðulegt.
en sambandi við kassavandamálin. þa sagði Jon Bergs mér það að þessi bill væri kassabrjótur vegna of mikils afls. og hann hefði tekið upp 2 sinnum kassa í þessum bil..