Þarf að gera við innri liðinn á 4 matic öxlum. E300 DTD 1994. Hef séð uppgerða öxla til sölu, þannig að partar ættu að fást.Einhver með hugmyndir hvar varahlutir fást?
Er mismunadrifið brotið ? Ef ekki má það ekki snúast með ?
Ef þú vilt aftengja það þá vantar ysta hlutann af öxlinum til að halda dekkinu föstu við nafið. Spurning að taka öxulinn í sundur við fyrsta hjörulið.
Eg er að laga bíl sem ég keypti fyrir 6-7 árum, og er búinn að hvíla sig inni í skúr síðan. Var að taka af honum hurðirnar, og átti í erfiðleikum með að aftengja rúðuupphalarann öðru megin, gat ómögulega fundið hann. Hann hefur væntanlega verið búinn að yfirgefa farartækið áður en ég keypti bílinn. ...
Ég er með Scout á 35" sem fornbíl, reyndar er hann ekki breytingaskoðaður, en stefni á að fá breytingaskoðun.
Hvar kemur fram að bíll hætti að vera fornbíll ef hann er á stórum dekkjum ?
Ætli vélin í Korando sé ekki 662, og skiftingin sem ég er með 711. Spurning hvort þetta passar saman, þ.e. vél úr 1998 og skifting úr 1985, einnig hvort sjálfskiftingin þoli 40 hestöfl í viðbót. Annars gæti skifting úr Musso verið lausnin, hún mun amk þola sína eigin vél. Mun reyna að fá að fylgjast...
Ætli einhver hafi sett 2.9 l, 5 cyl diesel vélina (man ekki tegund vélar) sem er í Korando í 460 bíl ? Og viti hvað ber að varast ?
Einnig er spurning hvort fram drifskaftið snúist ekki öfugt í 460, þannig að kassi/millikassi úr Korando væri tapað mál.