Hver á 300GD

#1
Ég á ´83 módel af G Benz sem byrjaði vegferð sína sem 230GE en nú er komin vél úr 300GD undir húddið. Ég er i vandræðum með að fá skoðun á bílinn og Bifreiðaskrá vill að ég vísi til einhvers G bíls sem er skráður með samskonar dísilvél frá verksmiðju.
Ef einhver ykkar á skráðan G Benz frá árunum 1979 -1989 með original 5Cyl díselvél (OM617) þá kæmi sér vel að að þið birtuð skráningarnúmer bílsins hér í svarþræði.
Með því móti get ég vísað til þess að þessar vélar hafi verið notaðar í G Benz.

Auðvitað ætti bifreiðaskrá að geta flett þessu upp en "kerfið" er ekki betra en þeir sem við það sitja...

Og svo er ég enn að leita mér að litlum dekkum til að aka á í skoðun til að halda fornbílaskráningunni. Minn bíll er óhækkaður á 35" dekkjum en þeir gera kröfu um breytingaskoðun þrátt fyrir að engu hafi verið breitt ..........

Karl 894 9595


Re: Hver á 300GD

#2
Sæll

Þú getur með mínu leyfi notað þennan: MA-219 (G-23084), 300GD árg. 1983

Ég á 31" dekk fyrir þig... Þú mátt breyta dekkjastærð um 10% og fyrst að orginal dekk samsvara sér sem 29" er þetta innan við það viðmið.

Hvaða bíll er þetta hinsvegar sem þú átt...??
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Hver á 300GD

#8
Ég er með Scout á 35" sem fornbíl, reyndar er hann ekki breytingaskoðaður, en stefni á að fá breytingaskoðun.
Hvar kemur fram að bíll hætti að vera fornbíll ef hann er á stórum dekkjum ?
300 GD 1985, 280 GE 1985, Scout 1979

Re: Hver á 300GD

#9
Um leið og fornbifreið er tekin til breytingaskoðunar, vegna þess að búið er að hækka hana upp og setja hana á stærri hjólbarða, að þá er verið að færa hana úr flokki minjaverðra ökutækja í sérútbúið ökutæki til fjallaferða.

Tilgangur þess að taka bíl, hversu gamall sem hann er, og breyta honum mjög mikið (umfram 10% stækkun hjólbarða) þykir alveg augljós og er alveg augljós. Markmiðið er að nota bílinn sérstaklega til utanvegaaksturs og það jafnvel að vetrarlagi. Þess vegna er ekki hægt að skrá sérbreytta torfærubifreið sem fornbifreið rétt eins og það er ekki hægt að skrá fornbifreið sem VSK ökutæki.

Með því að skrá bíl sérstakelga sem fornbíl eru menn á ákveðinn hátt að boða meira eftirlit með sér og sínu ökutæki. Við það byrjar tryggingafélagið í eitthverjum tilfellum að fylgjast með því hvað bílnum er mikið ekið á ári og lögreglu væri trúandi til að snúa slíkum bíl til síns heima í hálku og vondri færð ef þeir stöðvuðu hann. Slíkt ökutæki gæti líka hæglega verið fært til skyndiskoðunar ef ástæða væri til að ætla að skráningarupplýsingar væru augljóslega ekki réttar, eins og upplýsingar um hjólbarðastærð.

En þar sem að lög og reglur á íslandi eru mönnum yfirleitt til viðmiðunar hvernig menn ættu að haga sér, án þess að menn geri það, en ekki hvernig menn munu haga sér, að þá gera menn bara það sem þeir vilja, vitandi það að eftirlit með svona hlutum er lítið sem ekkert.... :roll:

Ég ætla hinsvegar að vorkenna þeim mönnum sem verða svo óheppnir að setja rangt skráða jeppabifreið sem fornbíl á allt of stórum dekkjum á hliðina uppi á fjöllum um hávetur í vitlausu veðri og það verður slys á mannskap. Hvað segir tryggingafélagið þá???? Þeir gætu unnið svona mál fyrir dómi og ekki þurft að borga neitt.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Hver á 300GD

#10
Þekkið þið dæmi þess að tryggingarfélag hafi gert endurkröfu á bíleiganda vegna óskráðrar dekkjastækkunar? -Ekki ég.

Minn bíll er hvorki hækkaður á boddí eða fjöðrum og því er allt óbreytt nema felgur eru breyðari og dekk stærri en upphaflega.
Neikvæð áhrif hærri dekkja á öryggi og aksturseiginleika bíls felst í skertri bremsugetu og hækkuðum þungdarpunkti -sem í flestum tilfellum sléttast út vegna þess að yfirleitt breikka bílar verulega mikið meira en þeir hækka (vegna breiðari dekkja og felgna). Hraðamælir sýnir 6% of lítið (þetta er OM617 svo of mikill hraði er ekki vandamál)
Skoðunarstöðvar mæla bremsugetu bíla en því miður þá er þar aðeins verið að mæla mismun bremsukrafta en ekki getu bremsukerfisins til að stöðva bíl á 120 Km hraða á sómasamlegan hátt.
Ef W460 á upphaflegum bremsubúnaði fæst breytingarskoðaður á 35" eða 38" dekkjum þá er ekki hægt að halda því fram að aðrir W460 með samskonar búnaði og 35" dekkjum hafi skerta bremsugetu ef virkni búnað er í lagi. Vilji tryggingarfélag sýna fram á skerta bremsugetu vegna stækkaðra dekkja þá jafngildir það kröfu á innköllun allra annara bíla af sömu gerð sem skráðir eru á jafnstór eða stærri dekk. Jafnvel innköllun allra sambærilegra jeppa með sambærilega dekkjastækkun.

Ég keypti þennan bíl árið 2000 og hef aldrei fengið á hann fulla skoðun, -hætti þessu veseni fyrir nokkrum árum og bíllinn hefur flaggað upplituðum grænum miða í nokkur ár.
Bíllinn er með original dráttarkrók frá verksmiðju sem ég hef ekki getað fengið samþykktan, sbr
http://old.mbclub.ru/mb/vin/?lng=eng" onclick="window.open(this.href);return false; , sleigið inn WDB46023917033230
(þarna getið þið flett up eigin Bensum)
sett hefur verið útá að sæti hafi vantað í bílinn, þeir samþykktu ekki vélina þó svo að framvísað hafi verið vélarnúmeri og vigtarseðli osfrv. Að endingu hætti ég að fara með bílinn í skoðun þar sem ég fékk endalausar athugasemdir sem ekki fjölluðu um öryggismál, en engar ábendingar um úrlausnir.
En það virkar á mig jafnt sem aðra að hóta sektum, þannig að ég brá mér með bílinn í skoðun og fékk í þetta skiptið mjög jákvæð viðbrögð og ætla því að nudda þessu á leiðarenda.
cron