Re: Hver á 300GD

#11
Það kann að koma þessu máli ekkert við, en Það er alveg rétt ábending hjá Rúnari að það er vafasamt að nota bíl í öðrum tilgangi en skráning/trygging hans segir til um. Bíll sem skráður er sem fornbifreið og nýtur trygginga sem slík, á ekki að nota í öðrum tilgangi en tryggingin segir til um, nema þá að samið sé um það sérstaklega við tryggingafélagið. Það getur nefnilega komið sér mjög illa ef slys/tjón verður við aðstæður sem tryggingin nær ekki yfir. Ef ég væri með minn Gelander skráðan sem fornbíl og hefði hann á fornbílatryggingu, þá myndi ég hafa samband við tryggingafélagið áður en ég færi í fjallaferðir til að athuga hvort ég væri tryggður á fjallvegum og utan alfaraleiða á fornbifreið. :wink:


Sveinn

Re: Hver á 300GD

#12
Ég er ekki kunnugur tryggingaþættinum, -hef verið tjónlaus í 30 ár!
Minni á að það er fjöldi aldraðra Willys, LR, og Bronco á fornbílatryggingu. Margir þessara bíla eru notaðir til ferðalaga fjarri Árbæjarsafninu á tillidögum.

Þessi 10.000 kall sem fornbílatrygging G bílsins kostar, eru mun fleiri krónur á hvern ekinn kílómeter en skyldutrygging af heimilisbílunum sem eru í daglegri notkun.

Re: Hver á 300GD

#13
Loki skrifaði:Ég er ekki kunnugur tryggingaþættinum, -hef verið tjónlaus í 30 ár!
Minni á að það er fjöldi aldraðra Willys, LR, og Bronco á fornbílatryggingu. Margir þessara bíla eru notaðir til ferðalaga fjarri Árbæjarsafninu á tillidögum.

Þessi 10.000 kall sem fornbílatrygging G bílsins kostar, eru mun fleiri krónur á hvern ekinn kílómeter en skyldutrygging af heimilisbílunum sem eru í daglegri notkun.
Merkilegt hve menn verða alltaf öruggir með sig ef þeir hafa sloppið við óhöpp í mörg ár. Jú það segir manni vissulega eitthvað um að viðkomandi er góður ökumaður, en það eru mörg dæmi þess að góðum ökumönnum verði á, því jú þeir eru alveg jafn mannlegir og allir hinir. Svo þarf það ekki endilega að vera þú sem ökumaður. Hvað með fávitana í kringum þig sem stundum eru kallaðir samferðamenn. Þeim getur orðið á og þú setið í súpunni.

Málið snýst ekki um það hversu mikið þú ekur bílnum. Það er hitt heldur er verið að benda á hvaða tryggingaflokki bíllinn tilheyrir. Ég skal umorða þetta ögn til einföldunar. Það eru litlar líkur á að tryggingafélag þitt vilji bæta þér ónýta derhúfu ef þú hefur tryggt skósóla.... um það snýst málið. Það versta við svona mál er að þetta kemur yfirleitt ekki í ljós fyrr en eitthvað hefur komið fyrir.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Hver á 300GD

#15
BaraBenz skrifaði:Smá hugleiðing almennt. Ef breyttur jeppi er ekki breytingarskoðaður, er hann þá ekki ólöglegur og þá myndu tryggingar falla úr gildi?

Samkvæmt skilgreiningu laga er hann ólöglegur já og það gæti orðið til þess að tryggingamál yrðu að eitthverju dómsmáli ef eitthvað kemur fyrir hann.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)