1989 W124 300D Project SKOÐAÐUR!!

#1
Sælir, langaði til að kynna mig hér aðeins

Ég heiti Rögnvaldur og ég var að kaupa mér minn fyrst Benz í gær, en sá sem varð fyrir valinu var '89 Mercedes Benz W124 300D, sem ég fékk á mjög góðan pening,

en hann þarfnast líka ástar og umhyggju þessi elska, það er margt sem þarf að laga og margt sem þarf að fiffa uppá, eins og t.d. brotinn v/aft.öxull, brotinn h/fr.gormur, laga handbremsuna, svo er topplúgu mótorinn óvirkur og topplúgan er orlítið opinn, svo þarf að massa hann og hreinsa ryðið í honum.

Hann er ekinn rétt aðeins 563.þúsund km :lol: bara rétt tilkeyrður, og hann er rauður að lit og er gamall leigubíll, og er ég annar eigandi á þessum bíl hérna á Íslandi var fluttur inn 1996.

En ég skal halda ykkur uppfærðum þegar ég fer að dunda mér í honum, var aðeins að taka til í honum í kvöld, henda rusli og skoða hvað þyrfti að laga og svoleiðis :wink:


Einnig ef einhver á eitthvað sniðugt fyrir þennan bíl, eins og einhver flott ljós á hann eða einhverja varahluti þá endilega hafið samband, hef áhuga á öllu sniðugu :wink:
Seinast breytt af Röggi þann 04 Jún 2007, 12:44, breytt 7 sinnum alls.


Röggi


1996 Saab R900 2.0 Turbo - Dekurbíllinn

#4
Velkominn á spjallið og gangi þér vel með bílinn. Endilega ef eitthver getur orðið þér að liði hér að þá póstaðu bara inn. Einnig gaman að fá að fylgjast með svona lagfæringum.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#5
Það er eitt sem mig langar að vita, hvar er topplúgu mótorinn staðsettur ??
Röggi


1996 Saab R900 2.0 Turbo - Dekurbíllinn

#6
Röggi skrifaði:Það er eitt sem mig langar að vita, hvar er topplúgu mótorinn staðsettur ??
Sæll, velkominn á spjallið og til lukku með bílinn!

...topplúgumótorinn er held ég alveg örugglega staðsettur í skottinu, vinstra megin, bakvið fóðringuna.
Sveinn

#7
Velkominn Röggi þér er velkomið að spyrja um allt milli himins og jarðar ég hef örlítið komið nálægt þessum bílum.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

#8
Oki flott, kíki á þetta

Er einnig búinn að finna öxul í bílinn sem er bara gott mál, þannig að hann fer bráðum að verða ökuhæfur aftur
Röggi


1996 Saab R900 2.0 Turbo - Dekurbíllinn

#9
Þá er ég kominn með myndir af kagganum mínum

[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0314.jpg[/img]
[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0313.jpg[/img]
[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0310.jpg[/img]
[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0308.jpg[/img]

Svoldið drullugur að innan
[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0312.jpg[/img]
[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0311.jpg[/img]

Og svo prufaði ég aðeins að massa skotthleran á honum og það varð smá munur
[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0309.jpg[/img]

Og svona er gengið frá topplúgunni :lol:
[img]http://i75.photobucket.com/albums/i313/ ... 0_0315.jpg[/img]
Röggi


1996 Saab R900 2.0 Turbo - Dekurbíllinn

#10
Það er nokkur vinna í að gera hann góðan en gangi þér vel með þetta :P
M.B. 270E seldur
M.B. 320 seldur
VW Carawelle ekinn 320.000 gefinn
M.B. árgerð 1974 húsbíll
Citroen C5 árg 2007 seldur
Mitsubishi Galant skúrskraut
Peugeot 5008