Ég heiti Rögnvaldur og ég var að kaupa mér minn fyrst Benz í gær, en sá sem varð fyrir valinu var '89 Mercedes Benz W124 300D, sem ég fékk á mjög góðan pening,
en hann þarfnast líka ástar og umhyggju þessi elska, það er margt sem þarf að laga og margt sem þarf að fiffa uppá, eins og t.d. brotinn v/aft.öxull, brotinn h/fr.gormur, laga handbremsuna, svo er topplúgu mótorinn óvirkur og topplúgan er orlítið opinn, svo þarf að massa hann og hreinsa ryðið í honum.
Hann er ekinn rétt aðeins 563.þúsund km
En ég skal halda ykkur uppfærðum þegar ég fer að dunda mér í honum, var aðeins að taka til í honum í kvöld, henda rusli og skoða hvað þyrfti að laga og svoleiðis
Einnig ef einhver á eitthvað sniðugt fyrir þennan bíl, eins og einhver flott ljós á hann eða einhverja varahluti þá endilega hafið samband, hef áhuga á öllu sniðugu