#3
fráHlynzi
Hef stúderað þetta mikið undanfarið í nálgun minni að fullkomnun. Svo ég er kominn niður á nokkur bón sem mér finnst þægilegt að nota og kosta ekki morðfjár.
Autoglym - high definition wax , þetta er mjög fint á dökka bíla, hið alræmda carnouba wax í þessu, dollan kostar þokkalega en endist í 20-30 umferðir svo prísinn er nú undir 500 kr. á umferð. Þetta fer á alla bíla sem ég hef klárað að massa og menn deila ekki mikið við þær niðurstöður.
Autoglym - Extreme gloss protection , þetta er til að fá mjög sterka bónhúð á bílinn, endist slatta (1-2 mán á veturna, 3-4 á sumrin) þetta gerir samt ekkert fyrir lit , "dýpkar" ekki glansinn, en þægilegt að skella þessu á af og til svo þetta verði alltaf mjög létt og þægilegt.
Concept - Apollo , þetta nota ég svona til að viðhalda bónhúð, held að þetta sé teflon bón sem dekkir litinn örlítið en er aðallega mjög þægilegt í vinnslu og fljótlegt.
Mjöllfrigg - hraðbón , ekki gamla mjallarbónið, heldur hraðbón, gerir svipaða hluti og apollo og kostar lítið, snilld í að viðhalda bónhúðinni, og ágætt að reyna að versla sem mest innlendar vörur.
Svo er til fullt af öðrum efnum, mest af þessu snýst um trúarbrögð og ég er kominn á þá niðurstöðu að m.v. verð er þetta nokkurnveginn með því betra sem er í boði.
Svo er málið að leira bílinn á undan bóninu, ná öllum óhreinindum af honum.