Re: Hvaða bón ?

#2
Ég er mjög ánægður með Autoglym (fæst í Húsasmiðjunni).
Mothers er líka mjög fínt,
og svo er Doktorinn að selja eitthvað gæðastöff sem ég man ekki hvað heitir en menn eru mjög ánægðir með þá vöru.
Sigurður HAMAR Pétursson 897-5576
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
BMW 225xe

Re: Hvaða bón ?

#3
Hef stúderað þetta mikið undanfarið í nálgun minni að fullkomnun. Svo ég er kominn niður á nokkur bón sem mér finnst þægilegt að nota og kosta ekki morðfjár.

Autoglym - high definition wax , þetta er mjög fint á dökka bíla, hið alræmda carnouba wax í þessu, dollan kostar þokkalega en endist í 20-30 umferðir svo prísinn er nú undir 500 kr. á umferð. Þetta fer á alla bíla sem ég hef klárað að massa og menn deila ekki mikið við þær niðurstöður.

Autoglym - Extreme gloss protection , þetta er til að fá mjög sterka bónhúð á bílinn, endist slatta (1-2 mán á veturna, 3-4 á sumrin) þetta gerir samt ekkert fyrir lit , "dýpkar" ekki glansinn, en þægilegt að skella þessu á af og til svo þetta verði alltaf mjög létt og þægilegt.

Concept - Apollo , þetta nota ég svona til að viðhalda bónhúð, held að þetta sé teflon bón sem dekkir litinn örlítið en er aðallega mjög þægilegt í vinnslu og fljótlegt.

Mjöllfrigg - hraðbón , ekki gamla mjallarbónið, heldur hraðbón, gerir svipaða hluti og apollo og kostar lítið, snilld í að viðhalda bónhúðinni, og ágætt að reyna að versla sem mest innlendar vörur.


Svo er til fullt af öðrum efnum, mest af þessu snýst um trúarbrögð og ég er kominn á þá niðurstöðu að m.v. verð er þetta nokkurnveginn með því betra sem er í boði.

Svo er málið að leira bílinn á undan bóninu, ná öllum óhreinindum af honum.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Hvaða bón ?

#4
Hlynzi skrifaði:Svo er málið að leira bílinn á undan bóninu, ná öllum óhreinindum af honum.
Leirinn er atriði sem sauðsvartur almúginn þekkir ekki.
Með því að leira lakkið er hægt að láta hvaða bón sem er virka ágætlega, tekur skemmri tíma en margur heldur.
Teddi :mercedes:

Re: Hvaða bón ?

#5
Benzari skrifaði:
Hlynzi skrifaði:Svo er málið að leira bílinn á undan bóninu, ná öllum óhreinindum af honum.
Leirinn er atriði sem sauðsvartur almúginn þekkir ekki.
Með því að leira lakkið er hægt að láta hvaða bón sem er virka ágætlega, tekur skemmri tíma en margur heldur.
Sammála, ég er helmingi fljótari að leira bílinn en að bóna, og gerir svo bón-vinnuna mun auðveldari fyrir vikið.
Mercedes Benz - C124 Sportline - M104 - 5 gíra bsk - LSD

Aron Matthíasson
7700323

Re: Hvaða bón ?

#7
Collinite...
Viktor Agnar Falk Guðmundsson
Sími:8462367
BMW E46 320i - MY01 - Schwarz II - Daily
BMW E36 3**i - MY00 - Cosmicschwarz - ///M
BMW E38 750i - MY96 - Orientblau - Induvidual
Dodge Ram Cummins 5.9 12v - MY96 - P-7100
cron