gmg skrifaði:Já ég er þeirrar skoðunar að það er ekki bara Facebook, spjallið er nú búið að detta all oft út, ég fylgist með hinum spjöllunum, kvartmila virðist halda sínu, live2cruize og krafturinn, blyfotur er dauður en ég er nýbyrjaður að fylgjast með
islandrover.is og þar er oft meira líf en hér
Þannig að það virðist sem að menn hafi mikið horfið frá okkur.
islandrover.is hefur nú líka fengið að kenna á hökkurum.
Lá niðri a.m.k. tvisvar og í annað skiptið var það í viku og hitt skiptið í fjóra daga.
Og athyglivert er að þeir eru ekki með fésbókarsíðu.
Hins vegar, þá leit ég á fésbókarsíðu klúbbsins okkar um daginn.
Þá var bara töluvert af spjallþráðum þar.
sveinn skrifaði:Veit ekki hvort þetta sé jákvæð þróun, því mér finnst þetta á FB hálfgert kraðak og maður nær ekkert öllu og margt sem fer framhjá manni ef maður hangir ekki yfir þessu
Sammála þessu. Ég er ekkert fyrir fésbókina og hef ekkert þangað að gera en ég vill vera hér á spjalli.
Ég er nú þeirrar skoðunar að ef menn hafa ekki áhuga á spjallinu þá þurfa þeir ekkert að tengjast því.
Ég er meira fyrir gæði en magn.
Menn segja að fésbókin veki áhuga fólks. Það getur vel verið.
Væri gaman að taka saman hvað margir af fésbókarvinunum (514)hafi gengið í klúbbinn eftir skráningu þar.
Ég vill frekar fjölga félagsmönnum í klúbbnum, efla mbclub.is og fá kannski fleiri á aðlfund en tíðkast hefur.
Það eru um 200 í klúbbnum, það eru tæplega 100 af þeim hér á spjallinu og eftir hreinsun á ónotuðum aðgöngum þá eru tæplega 2000 notendur hér. Má sennilega hreinsa meira til en þessir hafa verið virkir á spjallinu eftir áramót 2009-10.
Jón Ketilsson S. 8662773
Að eiga Benz eru trúarbrögð.