Er Facebook að drepa spjallið ?

#1
Ja mér er spurn ! Þá ekki bara þetta spjall, heldur all mörg önnur líka sem gjalda fyrir aukna umferð á FB um málefni sem hafa að öllu jöfnu þrifist á bílaspjallsíðunum. Það sprettur fram hver bílahópurinn af öðrum á FB með mikilli þátttöku og virkni í myndbirtingum. Sjálfur hef ég tekið mikinn þátt í rabbi og mynbirtingum á þessum síðum, enda mikið af nýju fólki sem ekki hafa sést á spjallsíðunum en hafa engu að síður mikið fram að færa. Einnig hefur það mikið segja hversu auðvelt er að hlaða inn myndum úr tölvunni án hnökra eða vistun á annari síðu fyrst. Hvað finnst mönnum um þessa þróunn ?


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#2
Við eigum að nota FB til að benda á spjallið, með því t.d. að setja inn hlekki á skemmtilega spjallþræði. Þá breytir engu hvort um er að ræða gamla eða nýja þræði.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#3
Jú, ég held að þetta sé alveg rétt hjá þér Jón, sennilega er þetta FB sem er að gera það að verkum að bílaspjöllin hafa orðið mun óvirkari :?

Veit ekki hvort þetta sé jákvæð þróun, því mér finnst þetta á FB hálfgert kraðak og maður nær ekkert öllu og margt sem fer framhjá manni ef maður hangir ekki yfir þessu :roll: Mörgu leiti samt gaman að sjá svona mikið líf í kringum bílamál en mig grunar að það verði allur vindurinn úr þessu eftir einhvern tíma þegar menn verða búnir að birta rjómann af myndunum sínum, en þetta snýst jú allt um myndir í þessum bílagrúppum. Menn eru líka orðnir full kappsamir að stofna nýjar grúppur.

Það hafa líka komið svona hype eins og FB, ...og farið. Nægir að nefna MySpace og MSN messenger. Mér finnst ég líka sjá hygla undir endalok FB; suggested page auglýsingar að færast í aukana :evil: og það á að fara að rukka fyrir skilaboð hefur maður heyrt svo dæmi séu nefnd.
Sveinn

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#4
Já ég er þeirrar skoðunar að það er ekki bara Facebook, spjallið er nú búið að detta all oft út, ég fylgist með hinum spjöllunum, kvartmila virðist halda sínu, live2cruize og krafturinn, blyfotur er dauður en ég er nýbyrjaður að fylgjast með islandrover.is og þar er oft meira líf en hér :(

Þannig að það virðist sem að menn hafi mikið horfið frá okkur.
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#5
Facebook hefur haft áhrif á spjallþræði, ekki spurning. Hef spurt aðra aðila "í sama geira" og við að þessu og flest allir hafa sömu sögu að segja, umferð hefur minnkað eftir að menn fóru almennt að nota Facebook.
Einn sagði þó að um leið og hann opnaði fyrir "Facebook login" á spjallið þá hafi það aukið aftur skráningar á spjallið sitt og því aftur orðið aukning í innleggjum. Með því að nota "Facebook auðkenni" hafi það einnig minnkað álagið á stjórnendum spjallsins við að eltast við hakkara og spammara.

Myndbirting virðist oft vera vandamál á spjallþráðum en það tengist oftast kunnáttuleysi viðkomandi aðila við að hýsa og/eða setja inn myndir :?
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#6
gmg skrifaði:Já ég er þeirrar skoðunar að það er ekki bara Facebook, spjallið er nú búið að detta all oft út, ég fylgist með hinum spjöllunum, kvartmila virðist halda sínu, live2cruize og krafturinn, blyfotur er dauður en ég er nýbyrjaður að fylgjast með islandrover.is og þar er oft meira líf en hér :(

Þannig að það virðist sem að menn hafi mikið horfið frá okkur.
islandrover.is hefur nú líka fengið að kenna á hökkurum.

Lá niðri a.m.k. tvisvar og í annað skiptið var það í viku og hitt skiptið í fjóra daga.

Og athyglivert er að þeir eru ekki með fésbókarsíðu.

Hins vegar, þá leit ég á fésbókarsíðu klúbbsins okkar um daginn.

Þá var bara töluvert af spjallþráðum þar.
sveinn skrifaði:Veit ekki hvort þetta sé jákvæð þróun, því mér finnst þetta á FB hálfgert kraðak og maður nær ekkert öllu og margt sem fer framhjá manni ef maður hangir ekki yfir þessu
Sammála þessu. Ég er ekkert fyrir fésbókina og hef ekkert þangað að gera en ég vill vera hér á spjalli.

Ég er nú þeirrar skoðunar að ef menn hafa ekki áhuga á spjallinu þá þurfa þeir ekkert að tengjast því.

Ég er meira fyrir gæði en magn.

Menn segja að fésbókin veki áhuga fólks. Það getur vel verið.

Væri gaman að taka saman hvað margir af fésbókarvinunum (514)hafi gengið í klúbbinn eftir skráningu þar.

Ég vill frekar fjölga félagsmönnum í klúbbnum, efla mbclub.is og fá kannski fleiri á aðlfund en tíðkast hefur.

Það eru um 200 í klúbbnum, það eru tæplega 100 af þeim hér á spjallinu og eftir hreinsun á ónotuðum aðgöngum þá eru tæplega 2000 notendur hér. Má sennilega hreinsa meira til en þessir hafa verið virkir á spjallinu eftir áramót 2009-10.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#7
Hef tekið eftir því að bæði eftir að facebook varð svona vinsælt hefur slatti færst þangað inn, einnig hefur kreppan dregið rosalega úr nýliðun að ég held í bílaspjalli og áhuga, þetta er einfaldlega of dýrt.

Facebook hefur þann óþolandi galla að það er gríðarlega erfitt að fara afturábak að finna efni sem var kannski sett inn fyrir nokkrum vikum síðan, hinsvegar á spjallsíðunum er það ekkert mál. Svo oft þræðir eins og DIY og fl. myndir er auðveldara að finna hér en á facebook.

En þægilegasti parturinn á facebook er events, held að menn muni enn betur eftir því að mæta þegar þetta er fyrir framan þá alla vikuna ef event-ið er sett inn þar.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#8
Langar að spyrja af hverju er svona flókið vesen að setja inn myndir á síðuna finnst þetta svo flókið að ég nenni ekki að læra það sjálfur og gæti trúað því að svo væri um fl.
Grétar Karlsson
s.6947259

Mercedes Benz 280se 1984
Mercedes Benz E280 1993
Mercedes Benz E220 1993
Izuzu Trooper 98
Toyota Avensis 98

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#9
Gretarrokk skrifaði:Langar að spyrja af hverju er svona flókið vesen að setja inn myndir á síðuna finnst þetta svo flókið að ég nenni ekki að læra það sjálfur og gæti trúað því að svo væri um fl.
Spurning að fara að græja einhvern möguleika á upload fídus.
Ég sjálfur er með mína eigin heimasíðu og hýsingu (reyndar 2 núna) og get sett inn myndir á netið eins og að færa þær úr einni möppu í aðra í tölvunni.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Er Facebook að drepa spjallið ?

#10
Hlynzi skrifaði:
Gretarrokk skrifaði:Langar að spyrja af hverju er svona flókið vesen að setja inn myndir á síðuna finnst þetta svo flókið að ég nenni ekki að læra það sjálfur og gæti trúað því að svo væri um fl.
Spurning að fara að græja einhvern möguleika á upload fídus.
Ég sjálfur er með mína eigin heimasíðu og hýsingu (reyndar 2 núna) og get sett inn myndir á netið eins og að færa þær úr einni möppu í aðra í tölvunni.
Ég er að nota Dropbox en er einnig með "aðstöðu" á SkyDrive hjá Microsoft, Box.net, SugarSync og Google Drive (svo nokkur dæmi séu tekin :lol: ). Nota Dropbox mest enda verið lengst með það í notkun og á mesta plássið þar.
Það eru til ágætar leiðbeiningar á spjallinu um hvernig maður setur myndir hérna inn frá Rúnari og fyrir neðan þær eru leiðbeiningar frá Vefstjórn um hvernig maður getur notað hýsingaraðila eins og Dropbox til þess að birta myndirnar:
http://www.mbclub.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=926" onclick="window.open(this.href);return false;
Benedikt Hans Rúnarsson