Jeppasýning hjá Öskju næsta laugardag

#1
Askja býður til jeppasýningar á laugardag milli kl. 12-16 þar sem glæsilegir Mercedes-Benz jeppar verða til sýnis. Þar má nefna ML-Class, GL-Class og GLK sportjeppann sem boðinn er á sérstöku afmælistilboði um þessar mundir eða frá 8.790.000 kr. Þá verður einnig til sýnis magnaður G-Lander jeppi og auk þess breyttur Mercedes-Benz Sprinter ferðabíll með 35 tommu dekkjum.


Garðar Lárusson
s. 892-0084

500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987

Re: Jeppasýning hjá Öskju næsta laugardag

#2
Ágætis sýninig að baki hjá Öskju mönnum. Þarna voru til sýnis innandyra einn GL jeppi, hvítur ML 300CDI, GLK 220CDI og G 350. Boðið var upp á reynsluakstur á tveimur GLK sportjeppum með sitthvorri vélarstærðinni. Ég prófaði GLK 220 CDI og var bara ágætlega sáttur við þau kynni.

Einn svona var sýndur innandyra (gæti verið sá sami). Verðið aðeins ca. 24.900.000 krónur
[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/Gelande ... BT-M40.jpg[/img]
Þessi höfðingi 300 GD árgerð 1993 tók á móti manni við innganginn. Ber aldurinn frábærlega og er ennþá með upprunalegt lakk sem vart sér á.
[img]http://img651.imageshack.us/img651/4900/10092011001.jpg[/img]
Þessir þrír voru ætlaðir í reynsluaksturinn, en ML-inn var seldur deginum áður þ.a.l. var ekki í boði að aka honum.
[img]http://img585.imageshack.us/img585/6079/10092011003.jpg[/img]
Sprinterinn á 35" virðist vera nokkuð eðlilegur við hliðina á Sprinternum hans Palla á 44" . En GLK er eins og fólksbíll við hliðina á bræðrum sínum. :lol:
[img]http://img64.imageshack.us/img64/4435/10092011004.jpg[/img]

Takk fyrir sýninguna og kynnin af afburðarbílum Öskjumenn. :clapping:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Jeppasýning hjá Öskju næsta laugardag

#3
JBV skrifaði:...Einn svona var sýndur innandyra (gæti verið sá sami). Verðið aðeins ca. 24.900.000 krónur
[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/Gelande ... BT-M40.jpg[/img]
Tek undir það að þetta var ágætist sýning og margir gestir mættir á staðinn. Gaman að því hvað margir sáu sér fært að mæta :)

Þetta er víst sami bíll og þessi á Laugaveginum :wink:
[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/misc/25kulur.jpg[/img]
Sveinn