Ágætis sýninig að baki hjá Öskju mönnum. Þarna voru til sýnis innandyra einn GL jeppi, hvítur ML 300CDI, GLK 220CDI og G 350. Boðið var upp á reynsluakstur á tveimur GLK sportjeppum með sitthvorri vélarstærðinni. Ég prófaði GLK 220 CDI og var bara ágætlega sáttur við þau kynni.
Einn svona var sýndur innandyra (gæti verið sá sami). Verðið aðeins ca. 24.900.000 krónur
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/Gelande ... BT-M40.jpg[/img]
Þessi höfðingi 300 GD árgerð 1993 tók á móti manni við innganginn. Ber aldurinn frábærlega og er ennþá með upprunalegt lakk sem vart sér á.
[img]
http://img651.imageshack.us/img651/4900/10092011001.jpg[/img]
Þessir þrír voru ætlaðir í reynsluaksturinn, en ML-inn var seldur deginum áður þ.a.l. var ekki í boði að aka honum.
[img]
http://img585.imageshack.us/img585/6079/10092011003.jpg[/img]
Sprinterinn á 35" virðist vera nokkuð eðlilegur við hliðina á Sprinternum hans Palla á 44" . En GLK er eins og fólksbíll við hliðina á bræðrum sínum.
[img]
http://img64.imageshack.us/img64/4435/10092011004.jpg[/img]
Takk fyrir sýninguna og kynnin af afburðarbílum Öskjumenn.
