Að þessu sinni er félagsmönnum í Blýfæti (http://www.blyfotur.is" onclick="window.open(this.href);return false;) einnig boðið til samkomunnar svo að vonandi verður skemmtileg flóra af áhugaverðum bílum á svæðinu.
Ef veðrið verður gott og mætingin góð þá verður örugglega tekinn rúntur á eftir.
Við bjóðum alla velkomna á þessa samkomu klúbbsins óháð því hvort sem þeir aki um á Mercedes-Benz eða ekki. Ekki er heldur skylda að vera meðlimur í klúbbnum.
Það eina sem við setjum sem "skilyrði" er að menn hafi áhuga.
Staður og stund:
Smáralind - nýja bílahúsið við vesturenda Smáralindar
Ef veðrið verður gott þá verðum við jafnvel úti á efri hæðinni
Mánudagurinn 27. júlí 2009, kl. 20:30
Ef einhverjar breytingar verða á staðsetningu þá verður það tilkynnt hérna.
Ef það verður ekki "sól og bongóblíða" og það eru einhverjir sem hafa áhuga á því að mæta á sérstaklega háum bílum þá er innkeyrslan í bílageymsluna að austan hæst en þá er farið framhjá Select stöðinni og meðfram nýbyggingunni inn í "kjallarann".
Ef veðrið er hins vegar gott þá verðum við uppi og því engar hæðartakmarkanir.
Hér er mynd af turninum eins og hann á að líta út:
[img]http://www.bygg.is/images/stories/verk/ ... _litil.jpg[/img] (af vef BYGG)
og hér er kort af Já.is sem sýnir staðsetninguna (MBKÍ logoið er þar sem bílastæðahúsið er)
[img]http://safnid.siminn.is/safnid/webui/_x ... t_OsS9KT3q[/img]
Ath. að við fáum að vera þarna með því skilyrði að menn gangi snyrtilega um svæðið og er spól og hraðakstur stranglega bannaður