Síða 1 af 2

Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 18 Júl 2009, 16:21
frá Benni
Mercedes-Benz klúbbur Íslands býður til samkomu ("hitting") mánudaginn 27. júlí.
Að þessu sinni er félagsmönnum í Blýfæti (http://www.blyfotur.is" onclick="window.open(this.href);return false;) einnig boðið til samkomunnar svo að vonandi verður skemmtileg flóra af áhugaverðum bílum á svæðinu.

Ef veðrið verður gott og mætingin góð þá verður örugglega tekinn rúntur á eftir.

Við bjóðum alla velkomna á þessa samkomu klúbbsins óháð því hvort sem þeir aki um á Mercedes-Benz eða ekki. Ekki er heldur skylda að vera meðlimur í klúbbnum.
Það eina sem við setjum sem "skilyrði" er að menn hafi áhuga.

Staður og stund:
Smáralind - nýja bílahúsið við vesturenda Smáralindar
Ef veðrið verður gott þá verðum við jafnvel úti á efri hæðinni
Mánudagurinn 27. júlí 2009, kl. 20:30

Ef einhverjar breytingar verða á staðsetningu þá verður það tilkynnt hérna.

Ef það verður ekki "sól og bongóblíða" og það eru einhverjir sem hafa áhuga á því að mæta á sérstaklega háum bílum þá er innkeyrslan í bílageymsluna að austan hæst en þá er farið framhjá Select stöðinni og meðfram nýbyggingunni inn í "kjallarann".
Ef veðrið er hins vegar gott þá verðum við uppi og því engar hæðartakmarkanir.

Hér er mynd af turninum eins og hann á að líta út:
[img]http://www.bygg.is/images/stories/verk/ ... _litil.jpg[/img] (af vef BYGG)

og hér er kort af Já.is sem sýnir staðsetninguna (MBKÍ logoið er þar sem bílastæðahúsið er)
[img]http://safnid.siminn.is/safnid/webui/_x ... t_OsS9KT3q[/img]

Ath. að við fáum að vera þarna með því skilyrði að menn gangi snyrtilega um svæðið og er spól og hraðakstur stranglega bannaður :!:

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 22 Júl 2009, 12:43
frá Ásgeir Yngvi
já kannski maður mæti :mrgreen:

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 22 Júl 2009, 23:33
frá Hlynzi
Ég mæti á E420 þangað !!

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 22 Júl 2009, 23:38
frá Benni
Hlynzi skrifaði:Ég mæti á E420 þangað !!
Loksins fæ ég að sjá gripinn ;)

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 22 Júl 2009, 23:45
frá Hlynzi
Benni skrifaði:
Hlynzi skrifaði:Ég mæti á E420 þangað !!
Loksins fæ ég að sjá gripinn ;)
Já, kominn tími til líka!
Hann verður ekki endanlega kláraður en alveg nóg svosem, svo verður kannski boðið uppá smá hring ef menn vilja heyra alvöru sound!

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 23 Júl 2009, 22:05
frá flatbeat
Pant hring!

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 23 Júl 2009, 22:54
frá AM
flatbeat skrifaði:Pant hring!
Sammála ;)

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 26 Júl 2009, 08:05
frá Hlynzi
Jæja, ætla ekki allir að mæta.

Mig vantar driver á 230E bílinn ef hann selst ekki í kvöld !

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 26 Júl 2009, 12:57
frá Hlynzi
Það verður engin úrkoma þennan dag, svo Teddi getur mætt á 500E.

Re: Samkoma mánudaginn 27. júlí 2009 - við Smáralind

Innsent: 28 Júl 2009, 09:30
frá Benni
Það var bara ansi góð mæting :D
Því miður gafst ekki tækifæri að taka rúnt á eftir. Menn voru bara uppteknir að spjalla og það eiginlega gleymdist bara :oops:

Það voru nokkrir sem tóku myndir og væri gaman að sjá afraksturinn hérna í þessum þræði :wink:

Ég verð þó að tilgreina atriði sem gerði mig :realmad: en það er þegar menn virða ekki einfaldar reglur um að spól og hraðakstur á svæðinu sé stranglega bannaður. Þetta var klárlega tekið fram í boðuninni fyrir samkomuna:
Benni skrifaði: Ath. að við fáum að vera þarna með því skilyrði að menn gangi snyrtilega um svæðið og er spól og hraðakstur stranglega bannaður :!:
Þeir aðilar sem stunda þetta virðast ekki gera sér grein fyrir því að þeir eru að skemma fyrir okkur. Við höfum fengið leyfi til þess að vera í þessari aðstöðu með því skilyrði að ekkert yrði um spól og hraðakstur.

Eftir gærdaginn þá er því miður hætta á því að við fáum að vera í Smáralindinni aftur svo að menn geta þakkað kjánaskap þessara einstaklinga sem virðast því miður ekki hafa þroska til þess að fara eftir svona einföldum reglum :evil: