W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

#1
Sælir.

Nú er ég í miðjum klíðum við að gera upp þennan grip. Planið er að gera græju sem kemst hægt en örugglega um fjallavegi landsins.

Ég er búinn að rífa hann allan í tætlur og sandblása fyrir ryðbætur og sé að ég þarf að skipta út aftur bodypörtunum, hornin eru í henglum.

Það væri frábært að fá ráð hérna hjá þeim sem hafa gert upp svona bíla hér á landi.

Ég er kominn í samband í Höskuld bílapartasmið sem gæti tekið tíma og vil gjarnan athuga fleiri möguleika ef þeir eru. Er hægt að panta þessa bodyhluta að utan?

Einnig sé ég fram á að vanta öll gluggagúmmí ásamt bodyskrúfum á bretti, innri og ytri.
Seinast breytt af eyjolfsson þann 03 Jún 2015, 10:28, breytt 2 sinnum alls.


Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

#4
eyjolfsson skrifaði:Ég er að berjast við að logga mig inn á Club Lounge svæðið.

Ég fékk Ice númer í Apríl 2014. Er eðlilegt að það taki svona langan tíma að komast þarna inn?

Ég vil gjarnan komast þarna inn sem fyrst til að komast betur að varahlutum etc...
Hmm... nei það á ekki að vera neitt vesen. Lykilorðið er sjálfkrafa eftirnafnið þitt með íslenskum stöfum ef það var skrifað þannig í kerfið.
Ef þetta gengur ekki þá endilega sendu mér línu, t.d. með einkapósti, og ég skal kíkja á þetta fyrir þig :)
Benedikt Hans Rúnarsson